Lífið

Sjálf­skipaður Yoda okkar Ís­lendinga hefur rangt fyrir sér

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi.
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Hvern lengir ekki eftir þeim tíma þegar orðið Hormús hljómaði eins og eftirréttur unninn úr affalls-afurð leikskólastarfs en ekki yfirvofandi heimskreppa?

Fáir virðast skilja hvað Trump gengur til með handahófskenndu stríðsbrölti sínu í Íran. Það aftrar þó ekki áhrifamönnum á Vesturlöndum frá því að sýna óskiljanlegum athöfnum hans skilning.

Í stað þess að standa í lappirnar og benda á að keisarinn gleymdi ekki bara að bera brúnkukremið á hálsinn á sér og eyrun, tipla bljúgir valdamenn á tánum kringum Trump með krosslagða fingur og von í hjarta um að næsta fórnarlamb þess elds og brennisteins sem rignir yfir heimsbyggðina verði einhver annar en þeir. Eða, eins og sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga, Ólafur Ragnar Grímsson, orðaði það í sjónvarpsþættinum Silfrinu þegar Trump hótaði að hernema Grænland: „Fæst orð bera minnsta ábyrgð“ og „allt kann sá sem bíða kann“.

Sagt er að fæst orð beri minnsta ábyrgð.Vísir/Vilhelm

Réttsýni kemst ekki á blað yfir heitustu tískufylgihluti ársins 2026. Fleðulæti eru hins vegar orðin pólitískt kænskubragð.

Sé horft um öxl sést hins vegar glöggt að slík aðferðafræði gagnast lítt gegn Trump.

Bæði kvalari og bjargvættur

Í maí á síðasta ári gerði Donald Trump sérstakan viðskiptasamning við Breta.

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði daginn „frábæran“ og samninginn „sögulegan“ um leið og hann smjaðraði fyrir forsetanum. Hann lét þess þó ógetið að samningurinn bætti aðeins hluta þess skaða sem nýir innflutningstollar Trump höfðu valdið Bretum.

Skopmyndateiknari dagblaðsins The Times fangaði gjörninginn næsta dag í myndasögu sem sýnir Trump hrinda Starmer út í sundlaug. Þar sem Starmer liggur við drukknun kastar Trump til hans björgunarhring. Starmer klöngrast upp úr lauginni og þakkar Trump lífgjöfina með faðmlagi.

Maður sem sparkar í geitungabú

Trump lætur í veðri vaka að lokun Hormús-sunds sé sönnun þess að Íran sé ógn sem þurfi að uppræta.

Trump er eins og maður sem sparkar í geitungabú og álítur það réttlætingu á sparkinu að geitungur skjótist í kjölfarið út úr því og stingi hann í fótinn.

Í árásarhug?GETTY

Bandaríkjaforseti segir nú þau lönd, sem nýti sér siglingaleiðina um Hormús-sund, þurfi sjálf að sinna þar öryggisgæslu. Trump sé hins vegar náðarsamlegast opinn fyrir því að hjálpa þessum löndum með „vandræði sín í Hormús-sundi“ sé hann beðinn um það.

Fráleitt er til þess að hugsa að þjóðarleiðtogar þakki Trump fyrir að bæta skaða sem hann olli sjálfur. Það væri þó ekki í fyrsta sinn.

Kjarnorkusamkomulagið sem sprengt var upp

Í júní á síðasta ári sprengdi bandaríski herinn upp þrjár kjarnorkurannsóknastöðvar í Íran.

Á leiðtogafundi NATO nokkrum dögum síðar kepptust þjóðarleiðtogar við að þakka Donald Trump fyrir að stöðva áform Írana um að koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Enginn þeirra vakti hins vegar máls á því að það var Donald Trump sjálfur sem hafði á fyrra kjörtímabili sínu „sprengt upp“ fjölþjóðlegt kjarnorkusamkomulag við Íran, sem haldið hafði kjarnorkuvánni í skefjum með friðsamlegum hætti.

Þægðin skilar aðeins háðung

Þeir sem gera sér grillur um að aðgerðaáætlunin „fæst orð bera minnsta ábyrgð“ sé líkleg til árangurs vaða í villu og svíma. Spyrjið bara Keir Starmer.

Bresk útgáfa af grínþættinum Saturday Night Life, sem sýndur hefur verið í Bandaríkjunum um áratuga skeið, var frumsýnd um síðustu helgi. Undanlátssemi Keir Starmer við Donald Trump var viðfangsefni fyrsta skopatriðis þáttarins. Í stiklunni telur Starmer árangurslaust í sig kjark til að hringja í Trump og tilkynna honum að hann vilji ekki senda bresk herskip í Hormús-sund.

Daginn eftir þáttinn áttu hinir raunverulegu Trump og Starmer símafund um ástandið í Hormús-sundi.

Áralöng þægð skilaði Starmer litlu öðru en háðung.

Rétt fyrir fundinn deildi Trump skopatriðinu af Starmer úr Saturday Night Life á samfélagsmiðli sínum.

Hefur okkur öll að fíflum

Svo lengi sem Trump vefur valdamönnum – sjálfskipuðum og kjörnum – um fingur sér hefur hann okkur öll að fíflum.

Við spriklum nú í sundlauginni sem Trump hrinti okkur út í. Láti hann svo lítið að kasta til okkar björgunarhring ætlast hann til að við þökkum honum fyrir.


Tengdar fréttir

Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.

Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð

Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“.

Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman?

Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá.

Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni

Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið.

Í sárum yfir brandara um hrossatyppi

Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur.

Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni

Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns?

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí

Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða.

Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“

Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins.

Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði?

Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu.

Erum við of heimsk til að nota gervigreind?

Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur.

Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður?

Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði.

Lögmálið um lítil typpi

Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.