Innherji

Hvað segja grein­endur er­lendra banka um stöðu og horfur Al­vot­ech?

Hörður Ægisson skrifar
Óhætt er að segja hlutabréfafjárfestar í Alvotech hafi átt undir högg að sækja um nokkurt skeið og markaðsvirði félagsins hefur lækkað um mörg hundruð milljarða.
Óhætt er að segja hlutabréfafjárfestar í Alvotech hafi átt undir högg að sækja um nokkurt skeið og markaðsvirði félagsins hefur lækkað um mörg hundruð milljarða.

Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil.


Tengdar fréttir

Lækka verðmatið og segja Al­vot­ech vera í „biðstöðu“ fram að samþykki FDA

Þótt langtímahorfur á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður séu góðar þá er útlit fyrir að Alvotech verði áfram í nokkurs konar „biðstöðu“ þangað til FDA gefur grænt ljós á markaðsleyfi í lok ársins, að mati greinenda erlends fjárfestingabanka, og er fjárfestum ráðlagt að fylgjast með fjárhagslegum sveigjanlega félagsins.

Al­vot­ech ætlar að færa hluta fram­leiðslunnar til Bandaríkjanna

Alvotech vinnur nú að því að koma á fót annarri framleiðsluaðstöðu sem yrði í Bandaríkjunum fyrir hluta af lyfjaframleiðslu sinni með því að gera samning við stategískan samstarfsaðila þar í landi. Að sögn stjórnenda félagsins, sem hefur hingað til verið með alla framleiðslu sína hér á landi, er markmiðið meðal annars að auka afhendingaröryggi og styðja við markaðssetningu og aukna sölu á alþjóðamörkuðum.

Líf­eyris­sjóðir biðu af sér dýfuna þegar gengi Al­vot­ech féll um sextíu pró­sent

Á meðan innlendir verðbréfasjóðir hafa flestir hverjir minnkað verulega stöðu sína í Alvotech undanfarna mánuði og misseri hafa lífeyrissjóðir beðið af sér dýfuna sem hefur orðið á hlutabréfaverði líftæknilyfjafélagsins. Eignarhlutur helstu lífeyrissjóða í Alvotech hélst að mestu óbreyttur í fyrra þegar gengi bréfa félagsins féll um meira en sextíu prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×