Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Þórarinn Þórarinsson skrifar 25. mars 2026 10:09 Alvarleg veikindi hafa hrjáð vinnufélagana á Samstöðinni, Maríu Lilju og Gunnar Smára, sem nú liggur á hjartadeild í rúmi sem María Lilja er nýstaðin upp úr. Gunnar Smári Egilsson, höfuðpáfi Samstöðvarinnar, segir mikið á þann litla vinnustað lagt þar sem hann er aftur lagstur inn á hjartadeild Landspítalans og nú í sama rúm og vinnufélagi hans, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, losnaði úr nýlega. „
Þá er maður aftur kominn á hjartadeildina, ekkert alvarlegt, bara eitthvert bakslag í lyfjameðferðinni, líkaminn ekki sáttur. Það er því útséð um að ég verði með viðtöl á Samstöðinni fyrir páska,“ skrifaði Gunnar Smári á Facebook í morgun.Gunnar Smári hefur undanfarið glímt við alvarleg veikindi, með blóðtappa í fæti, lungum og hjarta, og fjarvera hans hefur verið tilfinnanleg í dagskrá Samstöðvarinnar. Þar var hann nýbyrjaður að láta að sér kveða aftur en verður úr því sem komið er fjarri góðu gamni fram yfir páska. María Lilja hefur, ekki síður en Gunnar Smári, verið áberandi í þáttum Samstöðvarinnar en þurfti að hverfa af velli í ársbyrjun vegna dularfullra veikinda sem enduðu með dvöl á hjartadeildinni.Gunnar Smári upplýsir að hún hafi útskrifast fyrir helgi og hann hafi tekið við rúmi hennar. „Saman höfum við meira og minna haldið einu rúmi á hjartadeildinni síðan fyrir jól. Það er því mikið álag á þeim sem eftir eru, uppistandandi af starfsfólki Samstöðvarinnar, ég bið ykkur um að biðja fyrir því góða fólki. Og kannski að gerast áskrifendur, til að hjálpa okkur yfir þennan hjall.“
Fjölmiðlar Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira