„Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 24. mars 2026 08:24 Á myndinni sjást tæki frá Björgunarfélagi Akraness í blindbylnum sem gekk yfir í gær. Vísir/Björgunarfélag Akraness Björgunarsveitir Landsbjargar hafa haft í nægu að snúast frá því í gær vegna veðursins en nóttin var þó blessunarlega fremur róleg að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa. „
En fólk var önnum kafið frá því í gær síðdegis og fram á kvöld. Mér sýnist þetta hafa verið um tvöhundruð manns sem voru boðuð út frá Öræfum, nánast öllu Suðurlandinu og svo teygðist þetta inn á Norðurlandið eftir því sem leið á kvöldið.“ Jón Þór segir að mesta vinnan hjá björgunarfólkinu hafi sennilega verið undir Hafnarfjalli annarsvegar og í Öræfunum hinsvegar. „Þar voru að minnsta kosti þær aðgerðir sem snertu við hvað mestum fjölda þolenda,“ segir Jón Þór en undir Hafnarfjalli lentu meðal annars rúta og strætisvagn í vandræðum með nokkurn fjölda farþega innanborðs. „Þarna var bara allt sem að þjóðvegurinn bíður upp á. Staðan er bara þannig núna á þjóðvegunum að þegar einn bíll stoppar þá er mjög fljótt að bætast í þann hóp.“ Jón Þór segir svo að í gærkvöldi hafi þurft að aðstoða nokkurn fjölda erlendra ferðamanna við að fá gistingu í Öræfunum og þar í kring. „Heilt yfir reyndi bara svolítið á kerfið og það stóð sig vel. Við eigum mikinn fjölda sveita og ekki síst sjálfboðaliða sem eru tilbúnir til að fara út í svona verkefni, og það sýndi sig í gærkvöldi,“ segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar að lokum.
Björgunarsveitir Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira