Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Samúel Karl Ólason skrifar 23. mars 2026 21:29 Ökumaður eins vörubíls lenti í vandræðum undir Hafnarfjalli og þurfti einnig að ferja farþega úr rútu og strætisvagni. Björgunarfélag Akraness Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast á mörgum vígstöðvum í dag. Vegum hefur verið lokað víða um land og hefur þurft að koma fólki sem setið hefur fast til aðstoðar.
Mikið að gera á mörgum vígstöðvum. Hellisheiði var lokað í dag og komu björgunarsveitarmenn fólki þar til aðstoðar. Þá var svipað upp á teningnum undir Hafnarfjalli í kvöld. Þar var veginum lokað og er hann enn lokaður þegar þetta er skrifað. Fjórar björgunarsveitir voru kallaðar út vegna aðstæðna þar. Björgunarfélag Akraness, Björgunarsveitin Brák úr Borgarnesi, Björgunarsveitin Ok úr Borgarfirði og Björgunarsveitin Heiðar, sem er einnig úr Borgarfirði. Undir Hafnarfjalli var mikill vindur og skafrenningur en á vef Björgunarfélag Akraness segir að bílar hafi runnið út af veginum vegna vindsins. Þá lentu ökumenn rútu og strætisvagns í vandræðum vegna veðursins og var töluverður fjöldi farþega í þeim bílum. Fólk var ferjað undan Hafnarfjalli á brynvörðum bíl.Björgunarfélag Akraness Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við Vísi að störfum björgunarsveita undir Hafnarfjalli virðist vera að ljúka en þar lentu þó nokkrir í vandræðum. Einn vörubíll var fastur, auk fólksbíla og annarra farartækja. Opnað var fyrir fólk til að gista á Laxárbakka en ekki liggur fyrir hve margir þáðu það. Einn var fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar. Svipuð staða var uppi í Öræfum í dag. Þar sem björgunarsveitarmenn komu föstu fólki til aðstoðar. Þá voru sveitir á Siglufirði og Ólafsfirði einnig kallaðar út til að hjálpa fólki sem var fast í Strákagöngum á Siglufjarðarvegi. Þar voru allavega fjórir bílar fastir inni í göngunum. Einn vörubíl og fólksbílar en moksturstæki komst ekki framhjá þeim. Þá þurfti að ferja 24 til Siglufjarðar. Mynd úr munna Strákagangna frá því í kvöld. Lögreglan á Norðulandi Eystra segir snjóflóð hafa fallið á veginn rétt upp úr kvöldmat. Almenningi hafi verið lokað eftir það en nokkrir bílar hafi orðið innlyksa. Vegagerðin segir vegi á Siglufirði og í bænum ófæra. Hægt er að fylgjast með lokunum og fregnum af færð og umferð hér á vef Vegagerðarinnar.
Björgunarsveitir Færð á vegum Veður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira