„Önnur sönnun fyrir hæfileikum hans, hugrekki og karakter“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2026 06:31 Vinícius Júnior fagnar marki í nágrannaslagnum á móti Atlético de Madrid á Santiago Bernabeu-leikvanginum. Getty/Jose Breton Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, er á því að brasilíski framherjinn Vinícius Júnior sé „ekki langt frá“ sínu besta formi á ferlinum eftir að framherjinn skoraði tvö mörk – þar á meðal stórkostlegt sigurmark – í 3-2 sigri Real Madrid á Atlético Madrid í spænsku deildinni á sunnudagskvöldið.
Ademola Lookman kom Atlético yfir í fyrri hálfleik á Bernabéu áður en Vinícius jafnaði úr vítaspyrnu og Federico Valverde kom Madrid svo yfir. Nahuel Molina jafnaði í 2-2 með langskoti og þá skrúfaði Vinícius boltann fram hjá Juan Musso, markverði Atletico, og tryggði Madrid sigurinn og hélt þeim fjórum stigum á eftir Barcelona í baráttunni um spænska meistaratitilinn. Skoraði frábært mark á erfiðu augnabliki „Þetta var annar frábær leikur hjá Vini, önnur sönnun fyrir hæfileikum hans, hugrekki og karakter,“ sagði Arbeloa á blaðamannafundi sínum eftir leik. „Hann skoraði frábært mark á erfiðu augnabliki. Ég er heppinn að hafa hann sem leikmann. Ég veit ekki hvort hann er á sínu besta róli á ferlinum en hann er ekki langt frá því,“ sagði Arbeloa. Vinicius Júnior nos últimos 14 jogos:11 gols3 assistênciasDOIS GOLS NO ATLETI pic.twitter.com/GyimtBmQfe— Diário de Torcedor (@DiarioGols) March 22, 2026 Brasilíumaðurinn fékk standandi lófaklapp frá áhorfendum á Bernabéu-leikvanginum þegar honum var skipt út af á 87. mínútu. Vinícius hefur nú skorað fjögur mörk í tveimur leikjum, eftir að hafa einnig skorað tvö mörk gegn Manchester City í Meistaradeildinni í miðri viku. Ég er mjög ánægður „Hrósið eiga allir skilið: þjálfarinn, leikmennirnir og stuðningsmennirnir,“ sagði Vinicius við Real Madrid TV. „Ég er mjög ánægður, því ég hef unnið að því allt tímabilið að vera klár fyrir leiki eins og þessa, þegar þessi tímapunktur tímabilsins kemur,“ sagði Vinicius. „Ég veit ekki hvað það er með mig en ég bæti mig alltaf. Forsetinn [Florentino Perez] segir mér alltaf að ég verði að skora tvö mörk og í dag skoraði ég tvö, fyrir hann,“ sagði Vinicius.
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira