Af hverju eiga Íslendingar að vera stikkfrí í eigin vörnum Arnór Sigurjónsson skrifar 23. mars 2026 13:01 Ég trúi því ekki að Íslendingum finnist það sjálfsagt og eðlilegt að vera sjálfstæð og fullvalda þjóð án eigin varna. Á sama tíma og stjórnvöld og Alþingi eru sammála um að Evrópa standi frammi fyrir mestu hernaðarógn frá lokum seinni heimsstyrjaldar eftir innrás Rússlands í Úkraínu og að ógnin sé raunveruleg og aðkallandi og geti raungerst innan fimm ára. Að landfræðileg lega Íslands valdi því að landið mun dragast inn í stríðsátök ef önnur ríki í Evrópu verði fyrir árás Rússa hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Og íslensk stjórnvöld viðurkenna fúslega að beinar varnir landsins séu takmarkaðar hvort sem um er að ræða vopn, viðbúnað eða mannafla til að verja mikilvæga innviði og varnarmannvirki. Og því er spurt; af hverju eru varnir landsins svo óþægilegt umræðuefni að almenningur, stjórnvöld og Alþingi vilja ekki ræða það mál nema þá með tilvísun til þess að við höfum samninga við aðrar þjóðir um varnir landsins, þ.e. varnarsamninginn við Bandaríkin og NATO. Ákvæði um herskyldu íslenskra þegna var felld út úr stjórnarskrá Íslands árið 1985. Í dag eru því engin ákvæði í lögum landsins sem kveða á um að íslenskum ríkisborgurum beri skylda til að verja fullveldi og sjálfstæði landsins ef eftir því er kallað og þjóðin stendur frammi fyrir lífshættulegri hernaðarógn. Hernaðarógn sem getur raungerst með skömmum eða engum fyrirvara sem afleiðing stórveldaátaka eða hernaðarátaka sem flæða stjórnlaust frá einu heimshorni til annars. Í þeim tilvikum ætla Íslendingar að treysta því alfarið að aðrar þjóðir komi okkur til varnar; þ.e. Bandaríkjamenn í gegnum varnarsamninginn eða aðild okkar að NATO. Við ætlum hins vegar ekki að grípa til eigin varna. Hvað veldur þeirri meinloku í íslenskri þjóðarsál að halda að aðrir geri eitthvað fyrir okkur sem við erum ekki tilbúin að gera sjálf. Jú, kannski að svarið felist í því að þessar þjóðir sjái sér hag í því að koma okkur til aðstoðar vegna þess að það samrýmist og þjónar þeirra eigin þjóðarhagsmunum. Ef svo er vinna allir, bæði við og þessar erlendu þjóðir. En hvað ef þessir þjóðarhagsmunir fara ekki saman? Ef þjóðirnar sem við treystum til að verja okkur eru uppteknar við eigin varnir eða af öðrum orsökum geta ekki liðsinnt okkur þegar kallið kemur, en geta komið síðar? Hvað gerum við þá Íslendingar? Svarið á að vera augljóst. Við grípum til eigin varna. Því þær mýtur að við séum of fátæk og fámenn til að verja landið ef það verður fyrir fyrivaralausri eða óvæntri árás eru rangar. Við þurfum að geta varið mikilvæga innviði og hernaðarmannvirki þar til aðstoð berst erlendis frá. Það kostar mannskap, búnað, skipulag og þjálfun sem ekki er til í dag eins og stjórnvöld hafa bent á. Við þurfum íslenskt varnarlið sem geta verið fyrstu viðbragðsaðilar. Það þarf ekki að vera fjölmennt, en það þarf að vera til taks. Nema að niðurstaða almennings og Alþingis sé sú að íslenska þjóðin sé stikkfrí þegar kemur að því að verja landið! Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál NATO Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar