Hinn stóri hljómur í 100 ár Guðni Tómasson skrifar 26. mars 2026 08:03 Í blábyrjun júnímánaðar 1926, fyrir bráðum 100 árum, gerðust undur og stórmerki í íslensku tónlistarlífi. Í litla samkomuhúsinu við Tjörnina, sem í daglegu tali hét (og heitir enn) Iðnó, var komin á svið heil sinfóníuhljómsveit til að halda tónleika fyrir forvitna bæjarbúa. Þetta var í fyrsta sinn sem leikur slíkrar hljómsveitar ómaði á Íslandi og á þessum árum var hljóðritunartæknin vitanlega rétt að slíta barnsskónum. Til eru lýsingar á því að hluti þýsku tónlistarmannanna sem þarna voru á ferð, blásarar úr hljómsveitinni, hafi leikið íslenska þjóðsönginn af skipsfjöl þegar siglt var að landi í Reykjavík. Við tóku hvorki fleiri né færri 14 tónleikar á fimmtán dögum. Það var tónskáldið Jón Leifs sem lyft hafði þessu grettistaki, að koma um 40 tónlistarmönnum úr þýskri atvinnumannahljómsveit frá Hamborg í Þýskalandi hingað til lands. Sveitin hét Fílharmoníusveit Hamborgar og er enn starfandi í þýsku hafnarborginni sem hljómsveit sambandslandsins Hamborgar. Áhrifin af tónleikahaldinu voru mikil og mörgum fannst Reykjavík verða að heimsborg rétt á meðan heimsóknin stóð yfir. Fólk lét sig dreyma um að einn daginn myndi tónlistarlíf landsmanna færast upp á annað og hærra stig. Frá höfn til hafnar Þetta er rifjað upp nú, stuttu fyrir aldarafmæli þessa merka viðburðar í tónlistarlífi Íslendinga, vegna þess að í kvöld 26. mars 2026 leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands sína fyrstu tónleika í Hamborg. Þeir fara fram í einu glæsilegasta tónleikahúsi heims, Elbphilharmonie sem rís upp úr borgarlandslaginu við höfnina, rétt eins og Harpa gerir norður í Reykjavík. Þannig þakkar hljómsveitin fyrir þau fræ sem tónlistarfólkið frá Hamborg og Jón Leifs sáðu með komu sinni til Íslands fyrir öld síðan. Á tímum þegar öll möguleg tónlist veraldar býr í litlu tæki í vasa okkar gleymist kannski stundum hve lifandi tónlistarflutningur er mikill galdur. Stundum gleymist líka hvað tónlistarfólk þarf að leggja mikið á sig fyrir listina. Í fyrsta lagi þarf mikinn aga og metnað við tónlistarnámið. Svo þarf að æfa samstillinguna, hlusta og ná samhljómi. Til þess að komast inn í metnaðarfulla sinfóníuhljómsveit þarf fólk síðan að sigra í hæfnisprófi oft við mikla samkeppni, sem er ekki ólíkt því að skríða í gegnum nálarauga. Eftir það tekur við reynslutímabil áður en starfið hefst með sínu álagi og þrotlausum æfingum til ná settum markmiðum. Fyrir alúð og elju tónlistarfólksins í þjóðarhljómsveitinni ber að þakka. Fyrir svo litla þjóð eins og Ísland er árangur Sinfóníuhljómsveitar Íslands með ólíkindum. Hún ber hróður íslenskrar tónlistar og menningarlífs víða, hljóðritar íslenska samtímatónlist og bíður gestum sínum upp á fjölbreytta dagskrá á heimavelli þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hljómsveitinni er mikilvægt að vera með opinn faðminn gagnvart öllum þeim sem vilja upplifa galdurinn. Hundrað árum síðar ber að þakka fyrir hugmyndina frá Hamborg, að einn daginn yrði slík glæsisveit starfrækt á Íslandi. Höfundur er framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sinfóníuhljómsveit Íslands Mest lesið Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar