Lærum af sögunni: Segjum NEI við ESB! Jón Gerald Sullenberger skrifar 21. mars 2026 16:30 Dönsk yfirráð og fullveldibarátta Íslands Árið 1848 skrifaði Jón Sigurðsson forseti „Hugvekju til Íslendinga“ eftir að Danir höfðu afsalað sér ‘‘EINVELDI‘‘ yfir Íslandi. Þar hvatti hann til þess að Ísland yrði sjálfstætt og fullvalda ríki. Árið 1940 réðust Þjóðverjar inn í Danmörku gátu Danir hvorki varið land sitt né Ísland. Á þeim tíma voru sambandslög milli Danmerkur og Íslands sem skilgreindu hvernig löndin tengdust áður en Ísland var sjálfstætt lýðveldi. Framsýnir Íslendingar og sjálfstæðismenn sáu tækifæri og héldu þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi uppsögn sambandslagana við Dani og samþykkt var stofnun lýðveldis Íslands. 98,4% landsmanna samþykktu uppsögnina og stjórnarskrána sem tók gildi 17. júní 1944. Bretar voru andvígir lýðveldisstofnuninni en aftur á móti studdu Bandaríkin sjálfstæði Íslands. Árunum fyrir 1944 þegar Danir höfðu yfirráð yfir Íslandi stóð á gluggaskiltum fínu búðanna í Kaupmannahöfn: „Ingen hunde og ingen Islændinge.“ Þetta sýnir hvaða augum „vinir“ okkar Danir litu á Íslendinga. Truman-tilskipanir og hafréttur Árið 1945 lagði Harry Truman, Bandaríkaforseti, grunninn að yfirráðarétti þjóða yfir landgrunni sínum (continental shelf, landhelgi) með tveimur tilskipunum. Sendiherra Íslands í Washington, Thor Thors (bróðir forsætisráðherrans Ólafs Thors), flutti boð strax heim um þessa merku tilskipun Trumans. Ísland varð í kjölfarið frumkvöðull vestrænna ríkja í hafréttarmálum og færði landhelgi sína út í skrefum. 1958 úr fjórum í tólf mílur, 1972 úr tólf í fimmtíu mílur og loks í tvöhundruð mílur árið 1975. Kalda stríðið og stuðningur Bandaríkjanna Þessar breytingar leiddu til nokkurra „þorskastríða“ við Breta um landhelgi Íslands og fiskveiðirétt. Bandaríkin beittu þrýstu á Bretar að láta undan árás á Ísland vegna þess að Ísland væri eitt af stofnendum NATO. Í framhaldi felldu Bandaríkin niður tolla á íslenskan fisk og opnuðu þar með nýjan markað fyrir Íslendinga Í Bandaríkjunum. Rússar keyptu sjávarafurði af Íslendingum, en eingin önnur Evrópuríki komu Íslendingum til hjálpar og lokað var á sölu fisks til meginlands Evrópu. Marshall-planið og NATO Árið 1948 lagði Truman Bandaríkjaforseti grunninn að Marshall-planinu og NATO. Ísland fékk 43 milljónir dollara í aðstoð – hæstu fjárhæð sem ríki fékk miðað við höfðatölu – sem tvöfaldaði þjóðartekjur Íslendinga. Þetta var upphaf iðnvæðingar landsins og breytti Íslandi úr einu fátækasta ríki Evrópu í eitt það ríkasta. Ekkert Evrópuríkjanna tóku þátt í uppbyggingu Íslends eftir seinni heimsstyrjöldina, en Bandaríkin stóðu þar þétt við bakið á Íslendingum. Keflavíkurflugvöllur og Loftleiðir Bandaríkin byggðu Keflavíkurflugvöll („Meeks Field“) 1943 og afhentu þeir Íslandi völlin þeim að kostnaðarlausu 1946. Árið 1946 var gerður loftferðasamningu á milli Íslands og Bandaríkjanna. Þetta veitti Loftleiðum (síðar Icelandair) forgang á flugi til New York og Evrópu ásamt lágum gjaldtökum á lendingarleyfum um Bandaríkin. Þetta lagði grunn að ferðaþjónustu, einni stærstu atvinnugrein Íslands sem nú skilar rúmum 600 milljörðum króna og 200 milljörðum í skatttekjur 2025 – þar af mest frá Bandaríkjunum. Ekkert Evrópuríki kom nálægt uppbyggingu Keflavíkurflugvallar. Álver og útflutningur Öll álver á Íslandi voru byggð og fjármögnuð af Bandaríkjamönnum. Álútflutningur skilar 422 milljörðum króna árlega (2025). Silgt er með farminn til Rotterdam þar sem hann er umskipaður og fluttur áfram til Asíu og Bandaríkjanna, lítið brot fer til ESB-landa. Útflutningur frá Íslandi til Bandaríkjanna nemur 20–35% af heildarútflutningi ef álið er talið með. ESB-árásir og samningar Fátt er um fína drætti þegar samskipti Íslands og Evrópuríkja eru skoðuð. Bretar réðust á Ísland í þorskastríðunum, settu hryðjuverkalög á Ísland 2008 (Bretar voru þá í ESB) og hindruðu fyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til Íslendinga. Það var Rússland og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (með Bandaríkin í forystu) sem komu Íslendingum til hjálpar með neyðarláni. Bretar og Hollendingar (ESB) gengu harðast fram við að stoppa þessa fyrirgreiðslu enda ætluðu þeir sér að setja Ísland í greiðslufangelsi næstu áratugina. Þegar upp var staðið voru það Bandaríkin sem leiddu 4,6 milljarða fyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Undirritun Parísarsáttmálans 2016 skuldbatt Ísland til að greiða tugi milljarða í ESB-kolefnisskatt, sem mun íþyngja Íslenskum neytendum um ókomna tíð. Munu íslensk flugfélög og skipafélög lifa þetta af, og íslenskir neytendur munu finna gríðarlega fyrir þessum skatti þegar hann kemur að fullu til framkvæmda á næsta ári. Haustið 2025 braut ESB tollasamninga við Ísland með verndartollum á kísilmálmi og hafði Ísland ekkert um það að segja. Með þrýstingi frá ESB hafa Íslendingar lagt fram framlög til Úkraínu upp á 23 milljarða króna vegna stríðsátaka á sama tíma tekst ekki að halda bráðamóttökunni í Fossvogi í ásættanlegu ástandi. Hvað ætli þjóðaratkvæðagreiðslan í haust muni kosta ríkissjóð marga milljarða? Er ekki hægt að nýta þá fjármuni skattgreiðenda í mikilvægari verkefni fyrir land og þjóð! Sagan sýnir að Bandaríkin, ekki ESB-löndin, hafa stutt uppbyggingu Íslands. Vonandi kynnir utanríkisráðherrann sér þetta áður en hún „afhendir“ landið til Brussel. Átta ferðir hennar til Brussel og ein fýluferð til Bandaríkjanna lofa ekki góðu fyrir land og þjóð. Verndum sjálfstæði Íslands gegn ESB og glóblistunum í Brussel! Berum virðingu fyrir baráttu og framsýni Jóns Sigurðssonar forseta, Hannesar Hafstein, Sveins Björnssonar, Ólafs Thors, Bjarna Benediktssonar eldri og Davíðs Oddssonar, stöndum saman og verjum 100 ára sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og tryggjum að við gefum hana ekki á silfurfati til Brussel. Segjum nei takk við ESB! Höfundur er fasteigansali á Miami Flórdía. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 18.04.2026 Halldór Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar