Öfugir hvatar hlutdeildarlána Sindri Pálmason skrifar 20. mars 2026 11:01 Í þessari grein verður tekin fyrir ný íbúð í Grafarvogi sem uppfyllir skilyrði um hlutdeildarlán og tvo einstaklinga í leit að húsnæði. Íbúðin kostar 60 milljónir. Til að geta fengið hlutdeildarlán þá þarf að eiga 5% eigið fé eða 3 milljónir í þessu tilfelli, HMS lánar svo 25% eða 15 milljónir og banki eða önnur lánastofnun 70%. Hámarkstekjur fyrir einstaklinga eru 10 milljónir á ári eða um það bil 830 þúsund krónur á mánuði. Miðað verður við 2 einstaklinga segjum að þau heiti Gunnar og Sigrún, þau lærðu bæði hjúkrunarfræði við HÍ. Gunnari fannst nauðsynlegt að “leyfa sér” og var iðinn við djamm, utanlandsferðir og versla sér dýr föt á meðan námi stóð. Sigrún hefur hins vegar einsett sér það markmið að kaupa sér íbúð sem fyrst eftir námið, lifði sparsömu lífi og vann meðfram náminu. Sigrún og Gunnar útskrifuðust á sama tíma og vinna bæði á Landspítalanum. Gunnar vill ekki eyða öllum sínum tíma í vinnu og er því í 80% starfshlutfalli. Sigrún fór auðvitað beint í 100% starf enda í góðri trú um að það muni hjálpa henni að kaupa sér íbúð. Hún hefur með miklum dugnaði og fórnum náð að safna sér 13 milljónum króna. Gunnar hefur á sama tíma safnað 3 milljónum króna. Aftur að íbúðarkaupum, Sigrún sér íbúðina í Grafarvogi og hefur hug á að gera tilboð í hana. Eftir að hafa ráðfært sig við bankann kemur þó í ljós að hún stenst ekki greiðslumat fyrir afborgunum og getur því ekki keypt íbúðina. Sigrún athugar hvort hún geti fengið hlutdeildarlán hjá HMS en kemst að því að hún er með rúmlega 2 milljónum yfir tekjuviðmiðum HMS. Gunnar fer og skoðar sömu íbúð og ákveður að athuga hvort hann geti ekki fengið hlutdeildarlán því ekki stenst hann greiðslumat hjá lánastofnun án þess. Viti menn, Gunnar stenst öll skilyrði HMS fyrir hlutdeildarláni, hann á að lágmarki 5% og tekjur hans eru rétt undir 10 milljónum síðasta árið. Sigrúnu finnst þetta frekar ósanngjarnt og sér ekki fram á að geta eignast íbúð á næstu árum. Hún ákveður því að minnka starfshlutfall sitt niður í 80% og treysta á úthlutun ríkisins fremur en að treysta á eigin dugnað. Hvatar þessa kerfis eru öfugir enda ætti ríkið ekki að skipta sér af fasteignamarkaði. Höfundur er áhugamaður um hvata sem ríkið skapar. Höfundur er flugmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar