Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Árni Sæberg skrifar 19. mars 2026 16:43 Einar vísaði til Patreks í bókun í Borgarráði í morgun. Vísir Borgarráð samþykkti í dag að heimila umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar að hefja innkaupaferli vegna malbiksframkvæmda fyrir árið 2026. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 1.055 milljónir króna. Einar Þorsteinsson, borgarráðsfulltrúi Framsóknar, bókaði að Framsókn telji að stórauka hefði þurft framlög til malbiksviðgerða og vísaði í því samhengi til viðvarandi heilahristings vegna hola í götum, sem áhrifavaldurinn Patrekur Jaime kvartaði undan á dögunum.
Þetta segir í fundargerð fundar Borgarráðs, sem haldinn var í morgun. Í greinargerð með samþykktri beiðni umhverfis- og skipulagssviðs segir að um sé að ræða malbiksviðgerðir með ótilgreint magn, endurnýjun með fræsun og malbikun ásamt yfirlögnum á alls 147.400 fermetrum. „Framsókn telur að stórauka hefði þurft fjárframlög til malbiksviðgerða í Reykjavíkurborg. Skemmst er að minnast þess að áhrifavaldurinn skeleggi Patrekur Jaime kvartaði á dögunum undan viðvarandi heilahristingi vegna fjölda hola á götum borgarinnar. Mikilvægt er að bregðast við þessu ákalli frá almenningi um metnaðarfyllra viðhald gatnakerfisins,“ segir í bókun Einars. Þar vísar Einar til myndskeiðs sem Patrekur birti á Tiktok dögunum þar sem hann lofar þeim flokki sem lofar að laga holurnar á götum Reykjavíkur atkvæði sínu í vor. „Það er ekki eðlilegt að ég sé með króníska heilahristinga út af því að ég er að keyra í Reykjavík. Þúst, mér líður stundum eins ég sé bara einhver sveittur kall, bara að fara að kaupa mér mellu, bara í 1918 á hestbaki með Eiríki rauða. Hvað er að frétta? Þannig bara ef einhver ætlar að laga göturnar, you have my vote,“ sagði hann meðal annars.
Reykjavík Borgarstjórn Umferð Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira