Hótanir? Eða hvað? Unnar Þór Sæmundsson skrifar 18. mars 2026 11:01 Síðan ég steig fram og sagði frá dvöl minni í Bakkakoti hef ég talað skýrt um það sem blasir við. Kerfið sem á að vernda börn, virkar ekki eins og okkur hefur verið talin trú um að það virki. Það þarf ekki smávægilegar lagfæringar. Það þarf róttæka endurnýjun. Þessi málflutningur hefur ekki fallið vel í kramið alls staðar. Undanfarnar vikur hafa mér borist ýmis skilaboð innan úr stjórnsýslunni. Þau eru sett fram sem ráð, viðvaranir eða vingjarnlegar ábendingar. Inntakið er þó alltaf það sama. Stilltu þig í hóf. Ekki beina spjótum að ákveðnu fólki. Hættu að tala um að kerfið sé ónýtt. Dragðu úr gagnrýni. Sum hafa jafnvel látið að því liggja að ef ég haldi áfram að tala svona gæti málið sjálft orðið að engu. Þetta þýðir ekkert annað en talaðu lægra, þá kannski gerist eitthvað. Ég mun aldrei beygja mig fyrir slíku. Ég steig ekki fram til að verða hluti af þægilegu ferli þar sem allt er tónað niður og sett í orð sem enginn þarf að taka alvarlega. Ég steig fram vegna þess að það sem gerðist í Bakkakoti var alvarlegt og vegna þess að kerfið sem á að vernda börn er ónýtt. Ef kerfi eru ónýt, þá verður að mega segja það. Það er ekki vandamál að gagnrýnin sé skýr. Vandamálið er að kerfið sem á að vernda börn var hannað með þeim hætti að það verndar frekar gerendur og kerfið sjálft en ekki börn. Það er því algjör erindisleysa að koma til mín skilaboðum um að draga úr gagnrýni minni. Ég mun ekki hlusta á slíkt. Ég vona að þessi grein komi þeim sem þykir slíkt góð stjórnsýsla í skilning um það. Ég mun halda áfram að segja hlutina eins og er þeir eru en ekki eins og einhver sem ber ábyrgð vill heyra það. Kerfið er ónýtt, við eigum að henda því í ruslið. Ónýtt kerfi þarf ekki að laga með plástrum það þarf að byggja upp aftur frá grunni. Ef einhver telur að vandamálið sé að ég tali of skýrt og líkar ekki það sem ég hef að segja þá hefur viðkomandi einfaldlega ekki skilið hvað þetta mál snýst um. Vandamálið er ekki mín orðræða, vandamálið er kerfið. Höfundur var barn í Bakkakoti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál fósturbarna á Bakkakoti Unnar Þór Sæmundsson Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar