Vanmetin lykilfærni stjórnenda Ragnheiður Björgvinsdóttir skrifar 18. mars 2026 08:48 Fyrir um tveimur árum sótti ég um styrk hjá stéttarfélaginu mínu fyrir námskeiði í tilfinningagreind. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að sjálfshjálparnámskeið væru ekki styrkhæf. Mér fannst það bæði sprenghlægilegt en á sama tíma afhjúpandi, því þetta endurspeglar algengan misskilning. Í mínum huga er tilfinningagreind ein mikilvægasta hæfnin í fari hvers stjórnanda. Hvers vegna er lítið mál að fá styrk fyrir Excel-námskeiði eða gervigreindarnámskeiði en ekki fyrir námskeiði í tilfinningagreind? Þetta var góð áminning um að það sem mér finnst eðlileg og sjálfsögð vitneskja er ekki endilega sjálfsögð fyrir alla. Svo það er kannski ástæða til að staldra við og skoða hvað tilfinningagreind er og hvers vegna hún skiptir miklu máli á vinnustöðum, sérstaklega í fari stjórnenda. Hvað er tilfinningagreind? Tilfinningagreind er hæfnin til að skynja, skilja og vinna með tilfinningar, bæði hjá sjálfum sér og öðrum. Það felur meðal annars í sér að: taka eftir eigin viðbrögðum og skilja hvaðan þau koma geta staldrað við áður en brugðist er við lesa í samskipti og andrúmsloft í hópi bregðast við aðstæðum með yfirvegun Þetta snýst ekki um að vera alltaf rólegur, jákvæður eða „í jafnvægi“. Þetta snýst um að vera meðvitaður um það sem er að gerast og geta brugðist við á uppbyggilegan hátt. Hvað koma tilfinningar vinnunni við? Í vinnuumhverfi þar sem fólk vinnur saman eru tilfinningar alltaf hluti af myndinni. Þær birtast í samskiptum, í viðbrögðum við breytingum og í því hvernig fólk bregst við álagi og óvissu. Þær hafa áhrif á traust, samstarf og ákvarðanatöku. Tilfinningar eru í raun upplýsingar. Þær segja okkur þegar eitthvað skiptir máli, þegar eitthvað er í hættu eða þegar eitthvað er ekki í lagi. Stjórnandi sem kann að lesa þessi merki hefur miklu betri forsendur til að skilja hvað er raunverulega að gerast. Hann tekur eftir spennu áður en hún verður að ágreiningi. Hann greinir mótstöðu og getur hlustað, skilið og unnið með hana. Hann skapar öryggi fyrir aðra og hefur þannig áhrif á aðstæður og fólkið í kringum sig. Viðbrögð stjórnenda hafa áhrif langt út fyrir þá sjálfa. Tónninn sem þeir setja í samtali og hvernig þeir mæta erfiðum aðstæðum mótar andrúmsloftið í kringum þá. Þess vegna er tilfinningagreind ein af lykilhæfni góðs leiðtoga. Ef vinnustaður væri bara samansafn verkefna og ferla þá skiptu tilfinningar kannski ekki miklu máli. En vinnustaðir eru fyrst og fremst fólkið sem vinnur þar. Samskipti, traust, ákvarðanataka, breytingar og samstarf ráðast að stórum hluta af því hvernig fólk bregst við aðstæðum og hvert öðru. Þess vegna hefur tilfinningagreind bein áhrif á það sem gerist á vinnustaðnum … og hvort árangur næst. Tilfinningagreind er ekki „mjúkt mál“. Hún er kjarnaatriði í rekstri. Höfundur er mannauðsráðgjafi og markþjálfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnun Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar