Sá er vinur sem í raun reynist Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar 18. mars 2026 06:33 Það hefur lengi verið okkur Íslendingum í blóð borið að koma samborgurum okkar til hjálpar þegar mikið liggur við, jafnvel þannig að gömul illindi voru lögð til hliðar. Saga okkar ber þess fjölmörg vitni að þegar vá steðjar að, stöndum við saman, því lífið í þessu landi hefur frá upphafi byggst á samstöðu og gagnkvæmu trausti. Síðustu níutíu og átta ár hafa Íslendingar treyst á björgunarsveitir að koma til aðstoðar þegar mikið liggur við. Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg finna vel fyrir því trausti og það er svo sannarlega gagnkvæmt. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar væru ekki til ef ekki væri fyrir þinn stuðning. Björgunarsveitirnar eru jú þverskurður samfélagsins og lifandi dæmi um það hvernig fólk í þessu landi tekur höndum saman þegar á reynir. Það hefur lengi verið tilfinning okkar félaga í Slysavarnafélaginu Landsbjörg að landsmenn treysti okkur vel og þeir sýna það svo sannarlega í verki með reglulegum stuðningi. Við finnum hlýju og væntumþykkju í hverju klappi á öxl, í hverju þakklætisorði sem við fáum frá fólki sem nýtur okkar þjónustu og í hverri söfnun, þegar við óskum aðstoðar. Þar reynast svo sannarlega vinir í raun. Það er okkur því einstakt ánægjuefni að sjá svart á hvítu í nýlegri könnun Gallup hve mikið traust landsmenn bera til hinna ýmsu stofnana, að þar segjast 98% íslendinga bera mikið traust til björgunarsveitanna sinna. Slík niðurstaða fyllir okkur bæði stolti og auðmýkt. Traust er ekki sjálfgefið, það er áunnið með starfi, ábyrgð og þeirri einföldu staðreynd að vera til staðar þegar mest á reynir. Það er auðvelt að verða orða vant við slíkar aðstæður, en eitt er víst. Við getum ekki annað sagt en takk kæru Íslendingar! Við erum svo sannarlega til fyrir ykkur, en ekki síður fyrir tilstilli ykkar, þess stuðnings, trausts og samstöðu sem samfélagið sýnir okkur. Þannig hefur þetta verið í nærri heila öld og verður vonandi til framtíðar. Þegar mikið liggur við, þá stöndum við saman. Höfundur er formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björgunarsveitir Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Það hefur lengi verið okkur Íslendingum í blóð borið að koma samborgurum okkar til hjálpar þegar mikið liggur við, jafnvel þannig að gömul illindi voru lögð til hliðar. Saga okkar ber þess fjölmörg vitni að þegar vá steðjar að, stöndum við saman, því lífið í þessu landi hefur frá upphafi byggst á samstöðu og gagnkvæmu trausti. Síðustu níutíu og átta ár hafa Íslendingar treyst á björgunarsveitir að koma til aðstoðar þegar mikið liggur við. Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg finna vel fyrir því trausti og það er svo sannarlega gagnkvæmt. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar væru ekki til ef ekki væri fyrir þinn stuðning. Björgunarsveitirnar eru jú þverskurður samfélagsins og lifandi dæmi um það hvernig fólk í þessu landi tekur höndum saman þegar á reynir. Það hefur lengi verið tilfinning okkar félaga í Slysavarnafélaginu Landsbjörg að landsmenn treysti okkur vel og þeir sýna það svo sannarlega í verki með reglulegum stuðningi. Við finnum hlýju og væntumþykkju í hverju klappi á öxl, í hverju þakklætisorði sem við fáum frá fólki sem nýtur okkar þjónustu og í hverri söfnun, þegar við óskum aðstoðar. Þar reynast svo sannarlega vinir í raun. Það er okkur því einstakt ánægjuefni að sjá svart á hvítu í nýlegri könnun Gallup hve mikið traust landsmenn bera til hinna ýmsu stofnana, að þar segjast 98% íslendinga bera mikið traust til björgunarsveitanna sinna. Slík niðurstaða fyllir okkur bæði stolti og auðmýkt. Traust er ekki sjálfgefið, það er áunnið með starfi, ábyrgð og þeirri einföldu staðreynd að vera til staðar þegar mest á reynir. Það er auðvelt að verða orða vant við slíkar aðstæður, en eitt er víst. Við getum ekki annað sagt en takk kæru Íslendingar! Við erum svo sannarlega til fyrir ykkur, en ekki síður fyrir tilstilli ykkar, þess stuðnings, trausts og samstöðu sem samfélagið sýnir okkur. Þannig hefur þetta verið í nærri heila öld og verður vonandi til framtíðar. Þegar mikið liggur við, þá stöndum við saman. Höfundur er formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar