Sport

Dag­skráin: Man City og Chelsea þurfa krafta­verk í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe og Vinicius Junior eru í frábærum málum þegar Real Madrid mætir til Manchester.
Kylian Mbappe og Vinicius Junior eru í frábærum málum þegar Real Madrid mætir til Manchester. Getty/Aitor Alcalde

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á þriðjudögum.

Nú er komið að úrslitastundu í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en þá fara fram seinni leikirnir í fjórum af viðureignunum átta.

Ensku félögin Manchester City og Chelsea eiga bæði á brattann að sækja eftir þriggja marka tap í fyrri leiknum. City tapaði 3-0 á móti Real Madrid og Chelsea 5-2 á móti Paris Saint Germain. Bæði liðin eru á heimavelli en þurfa á kraftaverki að halda í kvöld.

Arsenal er í mun betri stöðu eftir 1-1 jafntefli á útivelli á móti Bayer Leverkusen. Fjórða viðureignin er síðan á milli Sporting og norska ævintýraliðsins Bodö/Glimt en Norðmennirnir koma með þriggja marka forskot til Portugals.

Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 19.30 og eftir leikinn munu Meistaradeildarmörkin gera allt kvöldið upp eða frá klukkan 22.00. Það gæti auðvitað breyst eitthvað ef framlengingar fara að flækja málið.

Dagurinn byrjar á tveimur leikjum í unglingadeild UEFA þar sem sjá má framtíðarmenn fótboltans spila.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport

Klukkan 12.55 hefst bein útsending frá leik Atletico Madrid og Club Brugge í unglingadeild UEFA í fótbolta.

Klukkan 14.55 hefst bein útsending frá leik Villarreal og PSG í unglingadeild UEFA í fótbolta.

Klukkan 19.30 hefst upphitun fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeildinni.

Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá leik Arsenal og Bayer Leverkusen í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Klukkan 22.00 hefjast Meistaradeildarmörkin þar sem farið verður yfir mörkin í öllum leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni.

Sýn Sport 2

Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá leik Chelsea og Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 17.35 hefst bein útsending frá leik Sporting og Bodö/Glimt í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá leik Manchester City og Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×