Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 13:44 Chelsea var refsað vegna greiðslna í tengslum við kaup á mönnum á borð við Eden Hazard og David Luiz. Getty/Darren Walsh Chelsea hefur hlotið þunga sekt og eins árs, skilorðsbundið félagaskiptabann, fyrir að brjóta reglur ensku úrvalsdeildarinnar með ólöglegum greiðslum til umboðsmanna og fleiri aðila.
Um er að ræða brot sem áttu sér stað á árunum 2011-2018, þegar Chelsea var í eigu rússneska auðkýfingsins Romans Abramovich sem svo seldi félagið árið 2022 til félags sem Bandaríkjamaðurinn Todd Boehly leiðir. Chelsea hefur,, samkvæmt BBC, viðurkennt að 47 milljónum punda hafi verið varið í leynilegar greiðslur til umboðsmanna og annarra aðila. Samkvæmt skýrslu ensku úrvalsdeildarinnar er um að ræða greiðslur vegna kaupa á stórstjörnum á borð við Eden Hazard, Samuel Eto‘o, Willian, Ramires, David Luiz, Andre Schurrle og Nemanja Matic. Sektin sem félagið hefur nú hlotið er upp á 10 milljónir punda eða næstum 1,7 milljarð króna. Félagið þarf einnig að greiða 750.000 punda sekt vegna skráningar leikmanna í unglingaakademíunni á árunum 2019-2022, og er akademían komin í níu mánaða félagaskiptabann sem er ekki skilorðsbundið og tekur strax gildi. Þar sem að félagaskiptabannið fyrir aðallið Chelsea er skilorðsbundið, til tveggja ára, ætti það ekki að koma í veg fyrir leikmannakaup hjá félaginu nema að eitthvað fleira komi upp á.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira