Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi Hjörtur Gíslason skrifar 15. mars 2026 13:16 Offita hefur farið vaxandi á Íslandi á undanförnum áratugum og er helsta lýðheilsuvá samtímans. Til framtíðar eru forvarnir besta leiðin í þessari baráttu en þegar einstaklingar eru orðnir of þungir þá sýna rannsóknir að tvennt hjálpar til langframa. Nýtilkomin þyngdarstjórnunarlyf eru gott og öflugt hjálpartæki fyrir einstaklinga sem eru ekki í alltof mikilli ofþyngd en efnaskiptaaðgerðir hafa sýnt sig vera eini raunhæfi kosturinn hjá þeim sem glíma við alvarlega offitu. Fordómar gagnvart sjúklingum með offitu eru á undanhaldi og vitundarvakning hefur orðið til að nálgast vanda þessa hóps af meiri nærgætni og þekkingu en áður. Það er afskaplega gott að bæði heilbrigðisyfirvöld og almenningur eru að átta sig á að offita er alvarlegur sjúkdómur sem hefur í för með sér skert lífsgæði og stytta ævilengd. Ég hef hjálpað sjúklingum með alvarlega ofþyngd í 25 ár og þekki sjúklingahópinn og fagið vel. Mér finnst frábært að málefni þessa jaðarsetta hóps sé kominn á dagskrá en það er mikilvægt að umræða sé bæði fagleg og málefnaleg en ekki byggt á misskilningi eða ósannindum. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti máls á því nýverið að það skyti skökku við að sjúklingar sem þurfa efnaskiptaaðgerð séu sendir til Svíþjóðar á vegum Sjúkratrygginga í stað þess að fá aðgerð á Íslandi. Hún á hrós skilið að vekja á þessu athygli og það væri óskandi að efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins færu fram á Íslandi. Við búum hins vegar við það að aðgengi að skurðstofum á opinberum stofnunum á Íslandi til valaðgerða er af skornum skammti. Það eru fáar aðgerðir framkvæmdar á Landspítala á hverju ári vegna skorts á plássum. Þær efnaskiptaaðgerðir sem fara þar fram eru á allra veikustu og þyngstu sjúklingunum eða á sjúklingum með fylgikvilla eftir efnaskiptaaðgerðir sem oftast hafa verið framkvæmdar á Klínikinni. Efnaskiptaaðgerðir eru flóknar aðgerðir á veikum sjúklingum og það er einmitt hjá þeim hópi sem Sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði við aðgerðir. Rétt er að líta á aðgerð sem hjálpartæki og til að sem bestur árangur náist þarf að sníða aðgerð að þörfum sjúklingsins. Þetta þýðir að betra er að gera flóknari, erfiðari aðgerðir þar sem tveir skurðlæknar gera aðgerðina saman. Það er kostar meira til skamms tíma en er sjúklingnum og samfélaginu til hagsbóta til langs tíma. Allar rannsóknir á árangri eftir efnaskiptaaðgerðir segja það sama. Það að vanda til verks og hafa hag sjúklinga í fyrsta sæti ásamt góðri formeðferð og eftirfylgd gefur bestan árangur. Aðgerð er ekki það sama og aðgerð. Engin einkarekin stofnun á Íslandi í dag hefur faglega getu og kunnáttu til að sinna þessum hópi og kostnaður íslenska ríkisins margfaldast ef sjúklingar fá ranga meðferð. Fyrirtæki mitt hefur gert samning við Sjúkratryggingar um efnaskiptaaðgerðir í Svíþjóð. Við erum með samninga við fjölda opinberra stofnana í Svíþjóð og Sjúkratryggingar borga sama verð og opinberar sænskar stofnanir. Ofan á þann kostnað leggst kostnaður við flug og dagpeninga. Heildarkostnaður íslenska ríkisins vegna hvers sjúklings sem fer í efnaskiptaaðgerð hjá okkur er 1,1 milljón. Ein einkarekin stofnun á Íslandi býður upp á efnaskiptaaðgerðir og er lægsti taxti hjá þeim tæplega 1,4 milljónir. Hvorki for- eða eftirmeðferð er í boði og aðgerðir sniðnar að gróðaþörf fyrirtækisins en ekki að þörfum sjúklings. Efnaskiptaaðgerðir á mínum vegum í Svíþjóð fara fram á sjúkrahúsi þar sem allt er til alls og það er sólahringsvakt skurðlæknis, svæfingarlæknis og annars starfsfólks ef eitthvað kemur uppá eftir aðgerð. Allir sjúklingar sem koma til okkar á vegum íslenska ríkisins hafa farið í gegnum formeðferð við offitu og uppfylla skilmerki um aðgerð. Offituteymið okkar er leiðandi í heiminum varðandi rannsóknir á aðgerðum vegna offitu, fylgikvillum og meðferðum. Við tökum þátt í samskráningu í Svíþjóð varðandi efnaskiptaaðgerðir og hefur sá gagnabanki verið leiðandi varðandi rannsóknir og framfarir í heiminum í rúmlega þrjátíu ár. Offituteymið mitt leggur mest til þessa gagnagrunns og hefur gert undanfarin ár. Í þessum gagnagrunn kemur fram að við erum með lægstu tíðni fylgikvilla í Svíþjóð þrátt fyrir að við erum með veikustu sjúklingana. Teymið mitt hefur birt fjölda ritrýndra greina hvað varðar framþróun á sviði efnaskiptaaðgerða og árangur. Vegna þessa er mikil ásókn í að koma til okkar að læra og á hverju ári höldum við fjölda námskeiða þar sem skurðlæknar, hjúkrunarfræðingar, svæfingalæknar og aðrar starfsstéttir alls staðar að koma til að læra. Það færi best á því að efnaskiptaaðgerðir á íslendingum færu fram á Íslandi. Ég veit líka manna best um kosti þess að gera slíkar aðgerðir utan við hefðbundinn ramma opinberra bráðasjúkrahúsa þar sem fyrirsjáanleiki og fagmennska gefur bestan árangur. Einkarekin framkvæmd efnaskiptaaðgerða á Íslandi fram að þessu hefur ekki uppfyllt þau skilyrði sem þarf til að veita sjúklingum með alvarlega offitu örugga og góða þjónustu. Árangur aðgerða frá einkareknum aðilum hérlendis hefur hvorki verið mældur né birtur. Ábyrgð á eftirliti og fylgikvillum hefur fram að þessu verið lítil sem engin. Ég hef hugsað um sjúklinga með offitu meiri hluta starfsævi minnar. Mér þykir vænt um sjúklingana mína og ég berst fyrir þeirra réttindum. Ég vil að sjúklingarnir mínir fái bestu mögulegu meðferð, helst á Íslandi. Ef það á að verða að raunveruleika þá þurfa gróðasjónarmið að víkja fyrir faglegum metnaði og umhyggju fyrir sjúklingunum. Höfundur er meltingafæraskurðlæknir á LSH og í Svíþjóð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar