Bandarískir landgönguliðar í Íran Arnór Sigurjónsson skrifar 16. mars 2026 07:30 Það er þekkt staðreynd að lofthernaður einn og sér vinnur ekki stríð. Seinni heimsstyrjöldin er skýrasta dæmið um það og Libía um hið gagnstæða. Lofthernaður Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran er nú sextán daga gamall þegar þetta er ritað. Það hefur valdið svæðisbundnu stríði sem breiðist út til fjölmargra Mið-Austurlanda og engin veit hversu mörg þau verða þegar yfir lýkur. Íranir gera árásir á olíuinnviði nágrannaríkjanna til að refsa þeim fyrir að leyfa Bandaríkjunum að hafa herstöðvar og til að skapa þrýsting frá umheiminum á árásaraðilana fyrir hækkandi verð á olíu og gasi sem er hætt að flæða í sama magni og áður. Lokun Hormuz-sundsins af hálfu Íran fyrir umferð olíuflutningaskipa hefur óneitanlega alvarleg áhrif á efnahagskerfi alheimsins. Aukin verðbólga og minnkandi hagvöxtur er handan við hornið. Nú kallar forseti Bandaríkjanna eftir aðstoð bandalagsþjóða við að vernda siglingaleiðir frá olíuútflutningsríkjunum við Persaflóa í gegnum Hormuz-sundið. Þar er hann fyrst og fremst að biðja um herskip. Á sama tíma hefur forsetinn einnig ákveðið að senda landgönguliða á svæðið. Hlutverk þeirra verður væntanlega það að koma í veg fyrir að Íranir geti nýtt sér hreyfanlega skotpalla fyrir eldflaugar eða dróna við strendur Hormuz-sundsins eða lagt út tundurdufl með fiskibátum sem þar er að finna í þúsundatali. Gömlu sannindin um að ekki sé hægt að vinna stríðið einungis úr lofti minna á sig. Bandaríkjamenn og Ísraelar virðast nú hafa tvo kosti. Sá fyrri er sá að hætta öllum árásum, lýsa yfir sigri og vona að Íranir láti það gott heita, þó svo að þeir hafi heitið því að gera það ekki. Sá síðari er að hefja landhernað, fyrst með því yfirlýsta markmiði að vernda siglingaleiðir á Persaflóa og síðar til að ná þeim markmiðum stríðsins sem lofthernaður einn sér getur ekki skilað. Slík stigmögnun átakanna mun ekki nást með fimm þúsund landgönguliðum, það mun þurfa nokkur hundruð þúsund hermenn til þess. Og slík átök munu ekki einskorðast við Mið-Austurlönd, sérstaklega ef aðrar þjóðir svara kalli Bandaríkjaforseta um að senda herskip á vettvang. Til þessa eru það Rússar sem eru sigurvegarar núverandi stríðsátaka við Íran. Olíuverð hefur hækkað og aflétting banns Bandaríkjanna við sölu á rússneskri olíu til umheimsins gerir Pútín forseta mögulegt að setja aukin þunga í árásarstríðið gegn Úkraínu. Skortur á loftvarnareldflaugum sem Evrópa hefur keypt af Bandaríkjunum og gefið Úkraínu gerir stöðu þeirra erfiðari. Öryggi Evrópu hefur af þeim sökum versnað. Það væru mistök að taka þátt í hernaði Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran jafnvel þó að verð á olíu og gasi hækki og efnhagshorfur séu nú verri en áður. Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar