Galdrakarlinn í AUS Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 15:29 Páll Þórðarson, prófessor í efnafræði, og Paul Conyngham ásamt björgunarhundinum Rosie. Samsett mynd Íslendingur var lykilmaður í einstöku máli hinum megin á hnettinum þar sem það tókst að lækna hundinn Rosie af krabbameini með hjálp gervigreindar. Þetta kemur fram í ástralska spjallþættinum Today Show þar sem Páll Þórðarson mætti ásamt Paul Conyngham, tæknifrumkvöðli frá Ástralíu. Þar vörpuðu þeir ljósi á þróun bóluefnisins.
Páll er prófessor í efnafræði við University of New South Wales (UNSW). Hann segist hafa verið óviss um hvort að það væri raunhæft að mynda bóluefni í tæka tíð til að bjarga lífi hinnar átta ára gömlu Rosie. Hún er blanda af Staffy og Shar Pei en Conyngham segir frá því í þættinum að hún hafi verið greind með mastfrumukrabbamein. Stór æxli komu fram á öðrum afturfæti hennar og henni voru aðeins gefnir nokkrir mánuðir ólifaðir. Conyngham hafi hins vegar ekki verið tilbúinn að sætta sig við þau svör. Paul Conyngham og Rosie hafa farið í sífellt fleiri göngutúra síðan henni fór að batna.Facebook Hann leitaði til gervigreindar eftir að hefðbundnar meðferðir báru ekki árangur við að stöðva vöxt æxlisins. Með 17 ára reynslu af vélanámi og gagnagreiningu notaði hann ChatGPT til að þróa áætlun og gervigreindarforritið AlphaFold til að greina próteinbyggingar sem tengjast krabbameini. Var efins í fyrstu En það er einmitt þá sem Páll kemur fyrst við sögu í málinu. Þáttastjórnendur Today Show spurðu Pál hvort að hann hefði verið efins með það að taka þátt í þessu þegar Conyngham hafði fyrst samband við hann. „Ég var þar svolítið, líklega aðallega bara af því ég hélt að þetta myndi taka of langan tíma, segir Páll. „Ég bara hélt ekki að við gætum gert þetta svona hratt og að það yrði tímanlega til að hjálpa Rosie í raun. Þannig að þetta hefur bara verið ótrúlegt verkefni fyrir okkur að taka þátt í,“ bætir hann við. Þeir segja svo saman frá því hvernig það hafi tekið um það bil tvo mánuði frá því að Páll og félagar hans í háskólanum hafi byrjað að þróa bóluefnið og þangað til að Rosie fékk fyrsta skammtinn. Æxlið hefur að þeirra sögn minnkað um helming og Rosie sýnir verulegan bata. Reyndar varð Conyngham jafnvel hlessa þegar hann sá hana stökkva yfir girðingu á eftir kanínu í lok janúar. Í lok viðtalsins segist Páll vera bjartsýnn á að þetta dæmi opni fjölda dyra hvað varðar krabbameinslækningar.
Gervigreind Ástralía Íslendingar erlendis Hundar Dýr Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira