Tvö rauð spjöld á loft í slag erkifjendanna Aron Guðmundsson skrifar 14. mars 2026 16:32 Leikrænir tilburðir Luis Diaz plötuðu ekki dómara leiksins. Vísir/Getty Tvö rauð spjöld fóru á loft í leik Bayer Leverkusen og Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag sem lauk með 1-1 jafntefli.
Bayer Leverkusen náði sterku 1-1 jafntefli gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu um miðja viku og byrjaði afar vel í leik dagsins þar sem Aleix García kom heimamönnum yfir með marki eftir stoðsendingu frá Patrik Schick á 6.mínútu. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks urðu gestirnir í liði Bayern Munchen svo fyrir áfalli þegar að Nicolas Jackson var rekinn af velli fyrir rautt spjald eftir ljótt brót á Terrier, leikmanni Bayer Leverkusen. Einum manni færri náði Bayern Munhen hins vegar að jafna metin í stöðuna 1-1. Það gerði Luis Díaz með marki á 69.mínútu. Hans fimmtánda mark í deildinni á tímabilinu. Díaz átti eftir að koma aftur við sögu í leiknum en þó ekki á góðan hátt því að á 84.mínútu fékk hann að líta sitt annað gula spjald, og þar með rautt, fyrir leikaraskap. Dýrt spaug fyrir Bayern Munchen sem náði þó að halda í jafnteflið til leiksloka þrátt fyrir að hafa verið tveimur mönnum færri síðustu mínútur leiksins. Jafnteflið gerir það að verkum að Bayern Munchen hefur nú sótt 67 stig í deildinni til þessa í sínum 26 leikjum og er með níu stiga forskot á Borussia Dormtund í öðru sætinu. Bayer Leverkusen er í sjötta sæti deildarinnar með 45 stig.
Þýski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira