„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 14. mars 2026 10:00 Vatn og vítamín er það fyrsta sem Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, fær sér á morgnana. Sem horfir á flestallar íþróttir og jafnvel þannig að stundum fer hann of seint að sofa því hann á eftir að horfa á eitthvað. Vísir/Einar Árnason Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Vekjaraklukkan hringir klukkan 7.10 en ég byrja alltaf á að „snooze-a. Er svo yfirleitt kominn fram úr sirka tíu mínútum síðar.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ætli stærsta verkefnið á morgnanna sé ekki að hjálpa yngsta drengnum að byrja daginn. Vatn og vítamín í kjölfarið og svo skutla ég drengjunum mínum í skólann. Frekar einföld rútína.“ Hvaða hetja úr bíómynd stendur alltaf upp úr hjá þér í minningunni? „John McClane úr Die Hard-myndunum og William Wallace í Braveheart koma upp í hugann. Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður að berjast fyrir frelsinu. Annars er ég miklu meira í því að horfa á flestallar íþróttir og þá helst handbolta og leiki Manchester United.“ Brynjari finnst í raun svolítið gaman af smá kaótík. En segir dagana þó um margt stjórnast af því sem er skráð í dagatalið. Vísir/Einar Árnason Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Við Kristján Elvar Guðlaugsson hófum rekstur á nýju félagi, Gosfélaginu, síðastliðið haust. Það eru aðeins tvö íslensk fyrirtæki sem framleiða íslenska gosdrykki þannig að við ætlum að hasla okkur völl á þeim markaði. Við erum núna að koma upp drykkjarvöruverskmiðju til að framleiða drykki eins og Klaka og Djúsí Klaka og tekur uppsetningin ansi mikið af mínum tíma þessa dagana. En þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni sem vonandi kemur til með að ganga vel næstu árin. Svo er ég í sjálfboðavinnu fyrir handknattleiksfélagið en annars ver ég tíma mínum með fjölskyldunni.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Ansi margt stjórnast af dagatalinu í pósthólfinu hjá mér. Annars hef ég yfirleitt gaman af smá kaótík og í þeirri vegferð sem í gangi í dag þá er eins gott að vera opinn fyrir hverju sem er.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég fer yfirleitt frekar seint í háttinn enda er ekkert betra en að eiga smá tíma á kvöldin í smá áhorfi á íþróttaefni eða þætti sem ég á eftir að horfa á.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02 „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02 Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00 Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00 Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00 Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02
„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02
Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00
Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00
Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00