Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar 13. mars 2026 08:31 “Það er frábært að vera hluti af bæjarfélagi sem er tilbúið að gera menningu og mannlífi hátt undir höfði. Bæjarfélagi sem er í alvöru tilbúið að fjárfesta í mannrækt og velferð íbúa sinna” . Þetta var það sem ég hugsaði þegar hugmyndir um nýja menningarkjarna komu inn á borð Mannlífs- og menningarnefndar Kópavogs á dögunum. Menningarkjarni í Kórnum og menningarmiðstöð í Smáralind eru nefnilega næst á dagskrá í Kópavogi. Þetta verður sannarlega leikbreytir fyrir íbúa bæjarins og styttir verulega leið þeirra sem vilja sækja öflugt menningarstarf. Bærinn okkar er langur í laginu og því mikilvægt að dreifa þjónustunni þannig að hún sé aðgengileg íbúum um allan bæ. Frestunaráráttan Um árabil hefur staðið til að opna bókasafn í efri byggðum bæjarins. Í hvert skipti hefur verkefnið hins vegar verið sett á ís þrátt fyrir fögur fyrirheit. Það er svo auðvelt að slá SVONA verkefni út af borðinu og setja fjármunina í eitthvað annað. Við í meirihlutanum ákváðum að standa við þetta margra ára gamla loforð í eitt skipti fyrir öll, enda hafði ákall íbúa í efri byggðum orðið hærra. Gera má ráð fyrir að menningarkjarninn í Kórnum hefji starfsemi eftir tvö til þrjú ár. Að menningarmiðstöð í Smáralind bætist nú við þessa flóru er síðan einstakt tækifæri sem ekki gefst á hverjum degi. Bæði menningarmiðstöðin og menningarkjarninn munu síðan klárlega bæta aðgengi barna að góðu og fjölbreyttu lesefni og styrkja þannig baráttuna fyrir bættum lestri og læsi barna. Hik er sama og tap Hugmyndin að því að ná betur til fólksins þar sem það er, kviknaði í lok síðasta árs. Smáralindin hafði þá nýlega opnað mathöll sem varð strax gríðarlega vinsæl – svo vinsæl að gestafjöldi miðstöðvarinnar jókst umtalsvert. Stundum finnur maður einfaldlega þegar eitthvað er rétt. Hugmyndin um að bjóða Kópavogsbúum upp á menningarupplifun á allt öðrum skala heillaði strax. Við þurftum að vinna hratt og það var magnað að sjá kraftinn og gleðina hjá starfsfólki menningarmálanna í Kópavogi – allir lögðust á eitt til að láta þetta verða að veruleika. Samningur um menningarkjarna í Smáralind var síðan undirritaður í vikunni og stefnt er að opnun á vordögum næsta árs, ef allt gengur að óskum. Lygilegur árangur Fyrir rúmum tveimur árum réðumst við í breytingar í menningarhúsum bæjarins. Markmiðið var að setja enn meiri kraft í viðburði, fræðslu og samverustundir fjölskyldunnar. Viðbrögðin úr röðum minnihlutans voru óvægin og stór orð féllu. En staðreyndirnar tala sínu máli. Árangurinn af breytingunum hefur verið lygilegur. Aðsókn að menningarhúsum bæjarins hefur margfaldast, hún jókst um 21% á síðasta ári milli ára svo dæmi séu tekin, og starfsemin er líflegri en nokkru sinni fyrr. Kópavogsbúar kunna nefnilega að meta kraft, dugnað og þor. Íbúar kunna að meta menningarframboð í hæsta gæðaflokki og kunna að meta þegar við grípum tækifærin þegar þau gefast – í stað þess að senda góðar hugmyndir í enn eina nefndina, enn einn stýrihópinn eða enn einn rýnihópinn - fresta og setja á ís um óákveðinn tíma. Stundum þarf einfaldlega að hafa kjark, áræðni og snerpu til að koma góðum hlutum til leiðar. Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu. Höfundur er bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður menningar- og mannlífsnefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
“
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar