Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Eiður Þór Árnason skrifar 12. mars 2026 22:30 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra lagði fram frumvarpið. Vísir/Arnar Áætlað er að 188 einstaklingar hefðu verið vistaðir í fyrirhugaðri brottfararstöð á síðasta ári ef úrræðið hefði verið til staðar. Þetta er mat heimferðar- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra. Það byggir á tölum yfir fólk sem fylgt var úr landi árið 2025 og hefði mögulega uppfyllt skilyrði lagafrumvarpsins sem er til umræðu í þinginu.
Miðað við sömu forsendur hefðu 158 einstaklingar verið vistaðir í nýja úrræðinu árið 2024 og 37 á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs. Tölurnar innihalda útlendinga sem luku afplánun, voru hnepptir í gæsluvarðhald, gert að halda sig á ákveðnum stað, haldið var á svokölluðu D-svæði á Keflavíkurflugvelli og loks einstaklinga sem vistaðir voru í fangaklefa í sólarhring áður en þeim var fylgt úr landi. Verði umrætt frumvarp að lögum verður stjórnvöldum heimilt að vista útlendinga sem vísa á úr landi í nýju úrræði sem stjórnvöld hafa ýmist lýst sem brottfararstöð eða lokuðu búsetuúrræði. Ýmsir hafa gagnrýnt fyrirætlanirnar og fulltrúi Rauða krossins sagt réttast að tala um varðhaldsstöð þar sem heimilt verði að vista börn. Þá talaði Barnaheill – Save the Children á Íslandi um varðhaldsbúðir sem minni á fangelsi í athugasemd við frumvarpsdrög. Einnig hefur ríkisstofnunin Barna- og fjölskyldustofa lýst yfir áhyggjum af frelsissviptingu barna í umsögn um frumvarpið. Stjórnvöld segja nýja úrræðið framför miðað við núverand ástandi þar sem útlendingar séu reglulega vistaðir í gæsluvarðhaldi áður en þeir eru fluttir úr landi. Tölurnar frá ríkislögreglustjóra koma fram í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um þetta frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Þar kemur fram að 51 einstaklingur sem til stóð að vísa úr landi hafi verið vistaður í gæsluvarðhaldi á síðasta ári og 80 árið 2024. Niðurbrot ríkislögreglustjóra yfir þá einstaklinga sem hefðu mögulega fullnægt skilyrðum um vistun í svokallaðri brottfararstöð.Dómsmálaráðuneytið „Til viðbótar við framangreinda töflu má einnig nefna einstaklinga sem ekki sýndu samvinnu við öflun ferðaskilríkja sem í dag eru 48. Auk þess má nefna að 14 börn hafa verið vistuð á vegum barnaverndar á meðan foreldrar voru í fangaklefa eða gæsluvarðhaldi á árinu 2024, fjögur á árinu 2025 og ekkert á þessu ári,“ segir í minnisblaðinu um áætlaðan fjölda þeirra sem hefðu mögulega verið vistaðir í nýja úrræðinu. Sé íþyngjandi frelsisskerðing Í minnisblaðinu segir að vistun í brottfararstöð feli í sér íþyngjandi skerðingu á frelsi og eigi því eingöngu að koma til álita þegar önnur vægari úrræði duga ekki. „Áhersla þessa frumvarps er að víkja frá þeirri framkvæmd að vista útlendinga í fangelsi sem ættu heldur að vera vistaðir á brottfararstöð, þar sem tryggður verður viðeigandi aðbúnaður og þjónusta. Ráðuneytið tekur því ekki undir umsagnir þess efnis að frelsissvipting útlendinga í þeim tilgangi sem frumvarpið mælir fyrir um sé ólögmæt eða að skilyrði til vistunar séu of víðtæk.“ „Að því er varðar gagnrýni um að ekki hafi verið lögfest fleiri vægari úrræði var við undirbúning frumvarpsins sérstaklega metið hvort gildandi heimildir veittu nægjanlegt svigrúm. Niðurstaðan var sú að þau úrræði sem þegar eru fyrir hendi í útlendingalögum teljist fullnægjandi til að koma í veg fyrir vistun þegar það er raunhæft, og ekki hafi verið sýnt fram á þörf fyrir frekari úrræði umfram gildandi heimildir.“ Ekki bara mönnuð fangavörðum Dómsmálaráðuneytið tekur fram að ekki standi til að brottfarastöðin verði eingöngu mönnuð af fangavörðum heldur sé gert ráð fyrir fjölbreyttum hópi starfsfólks. „Einungis einstaklingar sem uppfylla skilyrði laganna um vistun á brottfararstöð verða vistaðir á brottfararstöð. Það er því ekki svo að allir einstaklingar, sem hingað til hafa verið vistaðir í svokölluðu Neyðarskýli sem rekið hefur verið af Rauða Krossi Íslands verði vistaðir á brottfararstöð. Ráðuneytið áréttar einnig að einstaklingar, sem fá útgefið leyfi vegna umborinnar dvalar, munu ekki verða vistaðir á brottfararstöð nema aðstæður breytast þannig að hægt verði að framkvæma flutning og skilyrði laga um vistun á brottfararstöð séu uppfyllt,“ segir í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins til allsherjar- og menntamálanefndar.
Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hælisleitendur Tengdar fréttir Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Barna- og fjölskyldustofa, BOFS, lýsir yfir áhyggjum af frelsissviptingu barna í umsögn um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir hælisleitendur. Þar segir að stofnunin telji að frelsissvipting geti haft alvarleg áhrif á börn. Stofnunin hvetur löggjafann og aðra aðila sem málið varðar að falla frá frelsisviptingu barna með þeim hætti sem frumvarpið mælir fyrir um og í stað þess finna aðrar leiðir en varðhald þegar barnafjölskyldur eiga í hlut. 30. desember 2025 16:02 Ekki markmiðið að takmarka aðgengi fjölmiðla Nokkrar breytingar voru gerðar á frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir útlendinga, meðal annars var grein um aðgengi fjölmiðla og hjálparsamtaka að stöðinni tekin út. Í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að markmiðið sé ekki að takmarka aðgengi. 6. desember 2025 14:54 Setja fyrirvara við vistun barna í brottfararstöð Lögreglan á Suðurnesjum fagnar því að fram sé komið frumvarp um brottfararstöð fyrir útlendinga því slíkt úrræði sé mannúðlegra en að vista fólk ýmist í fangelsi eða á flugvelli. Yfirlögfræðingur embættisins vill að málsmeðferð fólks sem ekki hefur rétt á að dvelja á landinu verði minna íþyngjandi og þung og þá setur hún ákveðna fyrirvara við vistun barna í brottfararstöðinni. 1. desember 2025 13:00 Engin eðlisbreyting þó fangavörðum sé breytt í starfsfólk Engin eðlisbreyting veðrur á störfum starfsfólks brottfararstöðvar þó þeir kallist ekki lengur fangaverðir. Dómsmálaráðherra segir engan eiga að þurfa að fara í brottfararstöðina, hún sé aðeins fyrir þá sem ekki virði ákvarðanir stjórnvalda. 7. nóvember 2025 12:02 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira
Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Barna- og fjölskyldustofa, BOFS, lýsir yfir áhyggjum af frelsissviptingu barna í umsögn um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir hælisleitendur. Þar segir að stofnunin telji að frelsissvipting geti haft alvarleg áhrif á börn. Stofnunin hvetur löggjafann og aðra aðila sem málið varðar að falla frá frelsisviptingu barna með þeim hætti sem frumvarpið mælir fyrir um og í stað þess finna aðrar leiðir en varðhald þegar barnafjölskyldur eiga í hlut. 30. desember 2025 16:02
Ekki markmiðið að takmarka aðgengi fjölmiðla Nokkrar breytingar voru gerðar á frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir útlendinga, meðal annars var grein um aðgengi fjölmiðla og hjálparsamtaka að stöðinni tekin út. Í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að markmiðið sé ekki að takmarka aðgengi. 6. desember 2025 14:54
Setja fyrirvara við vistun barna í brottfararstöð Lögreglan á Suðurnesjum fagnar því að fram sé komið frumvarp um brottfararstöð fyrir útlendinga því slíkt úrræði sé mannúðlegra en að vista fólk ýmist í fangelsi eða á flugvelli. Yfirlögfræðingur embættisins vill að málsmeðferð fólks sem ekki hefur rétt á að dvelja á landinu verði minna íþyngjandi og þung og þá setur hún ákveðna fyrirvara við vistun barna í brottfararstöðinni. 1. desember 2025 13:00
Engin eðlisbreyting þó fangavörðum sé breytt í starfsfólk Engin eðlisbreyting veðrur á störfum starfsfólks brottfararstöðvar þó þeir kallist ekki lengur fangaverðir. Dómsmálaráðherra segir engan eiga að þurfa að fara í brottfararstöðina, hún sé aðeins fyrir þá sem ekki virði ákvarðanir stjórnvalda. 7. nóvember 2025 12:02