Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar 13. mars 2026 09:03 Kópavogsleiðin er svolítið merkilegt fyrirbæri. Ég finn mig knúna til að tjá mig um hana og hvernig hún reynist mér, einstæðri móður tveggja stúlkna sem eru í leikskóla annars vegar og grunnskóla hins vegar. Ég flutti í Kópavoginn aftur árið 2024 eftir skilnað en áður hafði ég búið úti á landi og hluti af hjónabandi. Ég ólst upp í Kópavogi, gekk alla mína skólagöngu hér og taldi að hér væri gott að búa með börn. Þegar ég ákvað að flytja hingað barst mér til eyrna að leikskólaganga væri ókeypis, eða allt að 6 klukkustundir á dag sem mér þótti alveg frábært og varð því nokkuð undrandi að sjá að leikskólavist stúlkunnar minnar varð dýrari en ég hafði áður vanist. Þ.e. þegar ég bjó úti á landi sem gift kona kostaði 8 klst. vistun u.þ.b. 34.000 kr. en kostnaðurinn hækkaði upp í u.þ.b. 42.000 kr. fyrir jafnlangan vistunartíma sem einstætt foreldri búandi í Kópavogi. Ath. að reikningurinn var 42.000 kr. þrátt fyrir að búið var að reikna 40% afslátt vegna fjárhagsstöðu minnar, samt voru þessi 6 klst. gjaldfrjálsar. Hvernig getur þetta staðist? Jú, allur vistunartími sem er umfram þessar 6 klst. á dag er verðlagður með miklu álagi; vistunartími á sterum. Ég er heilbrigðisstarfsmaður, vinnan mín gengur út á vaktir, Það er ekki svo að ég geti stytt vaktirnar mínar um 2 klst. enda þarf að manna og anna verkefnum skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins, þetta gefur að skilja. Ok, þarna þurfti ég að leggja höfuðið í bleyti. Með hvaða móti get ég nýtt mér þessi sérstöku kjör, 6 "fríar" klst? Hér er það sem ég ýmist skoðaði og reyndi: Ég þarf að mæta í vinnuna kl. 8 (já vel á minnst, það þarf s.s. að borga 15 mín aukalega hvern morgun því ég þarf að ná að fylgja stelpunni í leikskólann og mæta í vinnuna fyrir kl 8:00. Þessar 15 mín. er ekki hægt að nýta sem hluti af þessum 6 gjaldfrjálsu tímum) og vaktirnar eru ýmist til kl.15:00, 15:30 eða 16:00. Ég hugsaði ég gæti þá óskað eftir því við minn yfirmann að láta mér í té vaktirnar sem eru til kl. 15:00, þannig gæti ég borgað minna fyrir hvern dag ef ég stytti daglegan vistunartíma í 7,5 klst. Sem sagt borga fyrir 30 klst. í stað 40 klst. af vistunartímanum sem er "ekki gjaldfrjáls“. Þá myndi kostnaðurinn lækka hlutfallslega, 30.000 kr í stað 40.000. Það munar talsvert um þessa upphæð fyrir manneskju í naumri stöðu. Þó átti ég enn eftir að fylla upp í vinnuskyldu mína. Að stytta vaktirnar þýðir bara fleiri mætingar. Með þessu móti þarf ég að vinna a.m.k. einni fleiri vakt í hverjum mánuði. Æjjæjj.. og þá get ég ekki notað þann dag fyrir skipulagsdag heldur. Ég get ekki beðið móður mína um að spanna þessar klst; hún er áttræð með lungnaþembu og faðir minn býr úti á landi. Útrætt mál. Leikskólinn var svo elskulegur að gera undantekningu fyrir mig; hvað með að stytta ekki hvern dag en ég væri með stelpuna mína 1 dag í viku heima í staðinn? Heill vinnudagur af 5 er 20%. Á ég að lækka starfshlutfall mitt um 20%? Neibb, það borgar sig ekki fjárhagslega og dóttur minni leiðist bara heima og missir úr skólastarfi. Hér má koma fram að umgengi dætra minna við föður sinn er ekki mikil en hann tekur þær til sín eina helgi í mánuði að jafnaði. Ég þurfti að bíta í það súra epli að ég gæti ekki nýtt mér þetta frábæra boð um gjaldfrjálsan vistunartíma. Gjaldfrelsið er í raun bara í boði fyrir þá sem hafa sveigjanlegan vinnutíma eða eru í sambúð og enda vinnudaginn sinn á mis til að fylgja eða sækja börnin. Nú – eða sá eða þau sem hafa gott og sterkt bakland. Ég borga sem sagt bara uppsett verð fyrir vistunartíma dóttur minnar en reyni á móti að huga og hlúa að sálrænni heilsu; ég ákvað að líta svo á að umstangið og streitan við að reyna að nýta sér þessar klukkustundir væru ekki þess virði fyrir mig, sumt er ekki metið til fjár. Það sem angrar mig mest með Kópavogsleiðina er ekki sú staðreynd að ég get ekki nýtt mér hana heldur er það vegna þess, þegar öllu er á botninn hvolft, að hún er ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur. Hún er ekki gjaldfrjáls á meðan umframgjaldið er verðlagt svona hátt. Það má vel vera að þetta sé frábært fyrirkomulag fyrir hóp fólks sem er með aðstæðurnar til þess. Ég set stórt spurningarmerki við að það þurfi Kópavogsleiðina til svo unnt sé að stytta vistunartíma barna þeirra, öllum er frjálst að gera það sem vilja og geta. Þurfum við hin, sem ekki getum það, að borga brúsann? Það er alveg merkilegt að fyrirkomulag sem þykist vera útpæld snilld virðist vera sett á laggirnar með einhverju sem minnir helst á séríslenskt hugtak; "þetta reddast". Höfundur er sjúkraliði og einstæð móðir í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Leikskólar Grunnskólar Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun