Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Samúel Karl Ólason skrifar 12. mars 2026 08:10 Dyshan Best eftir að hann var skotinn í bakið af lögregluþjóni. AP/Lögreglan í Bridgeport Maður sem hafði verið skotinn af lögregluþjóni þurfti að bíða eftir sjúkrabíl, þar sem lögregluþjónn sem fékk „vægt kvíðakast“ lét fyrsta sjúkrabílinn færa sig á sjúkrahús. Særði maðurinn lést á sjúkrahúsinu en þangað var hann fluttur fjórtán mínútum á eftir lögregluþjóninum með kvíðakastið.
Dyshan Best var 39 ára gamall þegar hann var skotinn í bakið af lögregluþjóni í Bridgeport í Connecticut í Bandaríkjunum í fyrra. Hann var þá á flótta frá lögregluþjónum en í skýrslu sem gefin var út í vikunni komust rannsakendur að því að Best var með byssu í hendinni og að lögregluþjónninn sem skaut hann hefði haft ástæðu til að óttast um öryggi sitt. Samkvæmt AP fréttaveitunni vekur skýrslan þó spurningar um það sem gerðist í kjölfarið. Best, sem var þeldökkur, lá blæðandi í götunni og alvarlega særður þegar fyrsta sjúkrabílinn bar að garði klukkan 18:02. Það var fjórtán mínútum eftir að Best var skotinn. Sjúkraflutningamennirnir fluttu hann þó ekki á sjúkrahús heldur, að áeggjan annarra lögregluþjóna á vettvangi, tóku þeir hvíta lögreglukonu á sjúkrahús. Hún heitir Erin Perotta og hafði tekið þátt í að elta Best uppi en einn lögregluþjónn sagði rannsakendum að hún hefði verið hágrátandi, með oföndun og öll út í blóði. Þegar hún var komin í sjúkrabílinn og á leið á sjúkrahús neitaði Perotta þó meðferð og sagði: „Mér líður ágætlega. Ég þurfti bara að komast þaðan.“ Seinni sjúkrabíllinn kom á vettvang klukkan 18:12 og flutti áhöfn hans Best á sjúkrahús. Þangað var hann kominn tíu mínútum síðar, um fjórtán mínútum á eftir Perrotta. Hann dó í skurðaðgerð klukkan 19:41. Í áðurnefndri skýrslu rannsakenda er ekki sagt til um það hvort tafirnar í sjúkraflutningi hafi spilað inn í dauða hans. Ættingjar og vinir Bests segjast í samtali við AP vera reiðir og sárir yfir því sem fram kemur í skýrslunni og telja að hann hefði getað lifað af ef hann hefði verið fluttur á sjúkrahús með fyrsta sjúkrabílnum. „Við sóttumst eftir réttlæti. Í okkar samfélagi vitum við ekki hvernig það lítur út. Við viljum réttlæti fyrir frænda minn,“ sagði Tatiana Barrett, frænka Best. „Við teljum að hann hafi verið myrtur.“ Fengu ábendingu um slagsmál og vopnaða menn Lögreglunni hafði borist ábending um hópslagsmál og vopnaða menn og þegar Perrotta og Yoon Heo, samstarfsmaður hennar, komu á vettvang benti vitni þeim á tvo menn í jeppa. Þar sat Best en Perrotta bað hann um að stíga út úr bílnum svo hægt væri að leita á honum. Hann hljóp á brott og hlupu þau Perrotta og Heo á eftir honum. Samkvæmt AP segir í skýrslunni að Best hafi tekið upp skammbyssu á hlaupunum og Heo hafi skotið hann einu sinni í bakið. Í skýrslunni segir að upptaka úr vestisvél Heo sýni að Best hafi beint byssunni aftur fyrir sig á hlaupum þegar hann var skotinn. Þess vegna hafi Heo verið í rétti. Á upptökunni heyrist Best neita því en skammbyssa fannst nærri honum. Hér að neðan má sjá aðdraganda þess að Best var skotinn. Myndbandið sýnir hann hlaupa undan lögregluþjónum en vert er að taka fram að það sýnir ekki þegar hann var skotinn.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira