Finnbogi hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir Skjálfta Lovísa Arnardóttir skrifar 11. mars 2026 21:31 Verðlaunahafar kvöldsins. Íslensku myndlistarverðlaunin Finnbogi Pétursson hlaut í kvöld Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga. Sýningarstjóri var Paulina Brzuskiewicz-Kuhn. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhendi Finnboga verðlaunin í Austurbæjarbíói í kvöld. Verðlaunahafi hlýtur 1,5 milljónir í verðlaun.
Í umsögn um sýninguna segir að sýningin hafi verið: „Látlaus og umlukti skilningarvit áhorfenda, innsetning í rökkvuðu rými sem var samsett af spegildúk á vegg, ljósi úr lofti, duftkeri á stöpli og skjálftabylgjum. Hún vakti óvæntar tilfinningar. Speglunin og taktfast alltumvefjandi hljóðið laðaði áhorfandann að sér, kveikti hugleiðingar um kraft náttúrunnar, ódauðleika, hverfulleika og hvað tekur við þegar dauðinn knýr dyra.“ Í umsögninni kemur jafnframt fram að Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Finnbogi hlaut verðlaunin í kvöld. Íslensku myndlistarverðlaunin Þeir hafi ætlað að vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað en áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísaði þannig í nærveru ástvinar. Við legstein Ragnars í Svarfaðardal var jarðskjálftamæli komið fyrir og þaðan raungerði Finnbogi bylgjur í Listasafninu í Hveragerði og tengdi þessa fjarlægu staði. „Það er mat dómnefndar að Skjálfti kjarni leiðarstef annarra verka Finnboga, sem hafa verið innblástur listamanna, vakið áhuga fræðimanna og sýningargesta.“ Aðrir tilnefndir sem voru tilnefndir til verðlaunanna eru Claudia Hausfeld, Kristín Gunnlaugsdóttir og Sigurður Ámundason. Hildur Elísa Jónsdóttir fékk hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna. Aðrir sem voru tilnefndir eru Hrafnkell Tumi Georgsson og Julie Sjöfn Gasiglia. Steina varð verðlaunuð fyrir áhugaverðasta endurlitið í sýningu sinni Tímaflakk og Hamraborg Festival var á sýningunni viðurkennt sem áhugaverðasta samsýningin. Þá fengu þau Arndís S. Árnadóttir og Davíð Ólafsson viðurkenningu fyrir útgáfu sína Skólasaga 1939–1999.
Myndlist Menning Tengdar fréttir „Viljum fá fólk til að koma auga á það sem hér leynist“ Finnbogi Pétursson myndlistarmaður opnar sýningu í Hillebrandtshúsinu í gamla bænum á Blönduósi á morgun klukkan 16:00. Um er að ræða nýtt verk eftir listamanninn sem fengið hefur nafnið FLÓI. Hjónin Finnur Arnar og Áslaug Thorlacius standa fyrir sýningunni en blaðamaður tók púlsinn á Finni. 1. júlí 2022 13:31 Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira
„Viljum fá fólk til að koma auga á það sem hér leynist“ Finnbogi Pétursson myndlistarmaður opnar sýningu í Hillebrandtshúsinu í gamla bænum á Blönduósi á morgun klukkan 16:00. Um er að ræða nýtt verk eftir listamanninn sem fengið hefur nafnið FLÓI. Hjónin Finnur Arnar og Áslaug Thorlacius standa fyrir sýningunni en blaðamaður tók púlsinn á Finni. 1. júlí 2022 13:31