Húrra fyrir konum – í miðjum Mottumars Halla Þorvaldsdóttir skrifar 10. mars 2026 15:31 Frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana bárust þær frábæru fréttir í gær að þátttaka kvenna í krabbameinsskimunum hefur aukist umtalsvert undanfarin tvö ár. Það eru stórfréttir og miklu meira en bara tölur á blaði, það hefur áhrif á líf svo margra. Með aukinni þátttöku má gera ráð fyrir að leghálskrabbameinum fækki enn frekar þar sem hægt er að greina forstig þeirra í skimun og greina brjóstakrabbamein áður en þau fara að valda einkennum. Það getur aukið batahorfur og leitt til minna íþyngjandi meðferðar. Krabbameinsfélagið og aðildarfélög þess hafa beitt sér með margvíslegum hætti fyrir bættu aðgengi að krabbameinsskimunum og núna hrópum við hátt húrra fyrir konum í landinu sem hafa sýnt með afgerandi hætti að fyrirkomulag skimana skiptir máli. Ef aðgengið er auðveldara eykst þátttakan, sem getur leitt til betri árangurs í baráttunni gegn krabbameinum. Mörg skref hafa verið stigin á síðustu árum til að stuðla að aukinni þátttöku og ekki að ástæðulausu því þátttaka hafði minnkað umtalsvert frá árinu 2021. Nokkra þætti er vert að nefna sérstaklega; lækkun komugjalds fyrir leghálsskimanir í 500 krónur í janúar 2021 og fyrir brjóstaskimanir í október 2024, auðveldara aðgengi að bókunum í leghálsskimanir frá árinu 2021 og aukið aðgengi að leghálsskimunum á höfuðborgarsvæðinu með opnum húsum á heilsugæslustöðvum án tímapantana frá febrúar 2024. Þetta voru stór skref sem skiptu miklu máli. Afar ánægjulegt er líka að sjá árangur af því að endurvekja brjóstaskimanir á Suðurnesjunum í nóvember 2024. Enginn vafi er heldur á að stöðug umræða og hvatning krabbameinsfélaganna í fjölmiðlum, á málþingum, í fræðsluerindum, fréttabréfum og á samfélagsmiðlum um að konur nýti boð í skimun á stóran þátt í aukinni þátttöku. Því til viðbótar koma sérstakar hvatningarherferðir, til dæmis á vegum Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og opinberra aðila. Betur má ef duga skal Konur á Íslandi hafa verið í fararbroddi í ýmsum málum og geta án vafa orðið bestar í heimi í því að taka þátt í krabbameinsskimunum. Til þess þarf að gera enn betur varðandi aðgengi að skimunum og þar er nærtækt að nýta betur gæðavísa um skimanir sem sýna mismunandi þátttöku eftir landssvæðum. Þar má meðal annars líta til þess árangurs sem náðist á Suðurnesjum. Við þurfum að halda áfram að finna leiðir til að auðvelda konum þátttöku. Með samstarfi við Íslandsbanka og fyrirtæki í viðskiptum við bankann veitti Krabbameinsfélagið Landspítala styrk til að þróa rafrænt bókunarkerfi fyrir brjóstaskimanir í byrjun árs 2025. Þróunin er komin áleiðis og kerfið komið í notkun og hefur þegar aukið þátttöku án þess að vera alveg tilbúið. Vonandi verður kerfið klárað á þessu ári þannig að þátttakan aukist enn frekar. Skimun fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini farin af stað Seint á síðasta ári urðu langþráð kaflaskil í krabbameinsskimunum hér á landi, en þá hófst loksins skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi sem mun bjóðast öllum á aldrinum 50 – 74 ára óháð kyni, þegar skimunin hefur verið að fullu innleidd. Fyrstu árgangarnir hafa þegar fengið send boðsbréf og við vonum að þátttakan verði góð. Krabbamein í ristli og endaþarmi eru með algengustu krabbameinum hér á landi og með skimunum er unnt að greina forstig þeirra eða mein á byrjunarstigi. Að miklu er að vinna. Við getum aldrei gengið of langt í forvörnum gegn krabbameinum. Góð þátttaka í krabbameinsskimunum er þar lykilatriði; sameiginlegt verkefni metnaðarfullra stjórnvalda og almennings sem vill draga úr líkum á krabbameinum. Gerum enn betur, tryggjum með öllum ráðum sem auðveldast aðgengi að skimunum og nýtum boð í skimun þegar það berst. Krabbamein hefur ekki eingöngu áhrif á þann sem greinist heldur alla sem eru í kringum viðkomandi. Lífið liggur við. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Þorvaldsdóttir Skimun fyrir krabbameini Krabbamein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar