Hópurinn sem myndi hagnast mest Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 11. mars 2026 06:32 Minn ágæti vinur, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, var með grein á Vísi um helgina þar sem hann hélt því fram að þrír hópar á Íslandi myndu hagnast mest á inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Íslenzkt atvinnulíf, fólk og fyrirtæki sem skuldi og fólk sem búi utan höfuðborgarsvæðisins. Rökin sem hann færði fram í þeim efnum standast hins vegar ekki skoðun. Þeir myndu í raun ekki hagnast á því frekar en flestir aðrir. Skoðum þetta aðeins nánar. Magnús segir að íslenzkt atvinnulíf myndi meðal annars hagnast á meiri erlendum fjárfestingum, stöðugleika og tollfrjálsum markaði. Magnús virðist þannig til dæmis ekki hafa lesið skýrslu Marios Draghi, fyrrum seðlabankastjóra Evrópusambandsins, um stöðu efnahagsmála þess og framtíðarhorfur. Það er ekki falleg lesning þar sem meðal annars kemur fram að of mikið reglufargan sambandsins haldi til dæmis aftur af erlendri fjárfestingu, nýsköpun og framleiðni innan þess. Snúist um tilvistargrundvöll ESB „Takist ekki að auka framleiðni innan Evrópusambandsins munum við neyðast til þess að velja og hafna. Við munum ekki geta orðið í senn leiðandi á tæknisviðinu, leiðarljós ábyrgðar í loftlagsmálum og forystuafl á alþjóðasviðinu. Við munum ekki geta fjármagnað velferðarkerfi okkar. Við munum þurfa að draga úr einhverjum, ef ekki öllum, metnaðarfullum markmiðum okkar,“ segir enn fremur í skýrslu Draghis. Sagði hann þetta snúast um tilvistargrundvöll Evrópusambandsins. „Innri markaðinum [Evrópusambandsins] var ýtt úr vör á sínum tíma með það að markmiði að skapa samkeppnishæfasta efnahagssvæði í heimi. Í staðinn erum við orðin heimsmeistarar í of miklu reglugerðafargani,“ sagði Friedrich Merz, kanzlari Þýzkalands í Davos í janúar. „Bæði Þýzkaland og Evrópusambandið hafa sólundað gríðarlegum tækifærum fyrir vöxt á undanförnum árum með því að draga lappirnar varðandi umbætur og skerða óhóflega frumkvöðlafrelsi.“ Vextirnir birtingarmynd stöðnunar Varðandi tollfrelsi eru þegar engir tollar á innfluttum vörum frá Evrópusambandsins vegna EES-samningsins og fríverzlunarsamnings Íslands við forvera sambandsins frá 1972. Nema á landbúnaðarvörum. Innan Evrópusambandsins færum við hins vegar inn fyrir tollamúra þess gagnvart restinni af heiminum sem eru margfalt umfangsmeiri en tollar Íslands í þeim efnum sem eru nánast engir. Það þýddi einfaldlega dýrari innfluttar vörur fyrir fyrirtæki og almenning. Hvað skuldugt fólk og fyrirtæki varðar nefnir Magnús lága stýrivexti á evrusvæðinu sem þó eru ekki birtingarmynd heilbrigðs efnahagsástands heldur þvert á móti efnahagslegrar stöðnunar árum saman með litlum eða engum hagvexti víðast hvar, skorti á framleiðni og viðvarandi miklu atvinnuleysi. Með lágu vöxtunum hefur verið reynt að koma efnahagslífinu af stað á nýna leik en án mikils árangurs. Þess vegna minnast Evrópusambandssinnar helzt aldrei á aðrar hagstærðir en vextina. Komast ekki úr foreldrahúsum í ESB Fólk sem er atvinnulaust kaupir ekki mikið íbúðir. Vextir eru ekki það eina sem máli skiptir í þeim efnum. Ungt fólk er iðulega í foreldrahúsum langt fram á fertugsaldur víða á evrusvæðinu. Þar á meðal í Spáni, Ítalíu og Frakklandi svo dæmi séu tekin. Ástæðan er ekki aðeins atvinnuleysi heldur einnig lág laun, skortur á húsnæði og kröfur um háa útborgun vegna fasteignalána. Vextir skipta vitanlega máli en þeir skipta ekki öllu máli. Þeir duga þannig skammt við þessar aðstæður. Varðandi síðan fólk utan höfuðborgarsvæðisins talaði Magnús um styrki frá Evrópusambandinu. Á sama tíma liggur fyrir, og er niðurstaða allra rannsókna í þeim efnum, að Íslandi myndi greiða meira til sambandsins en það fengi til baka vegna sterkari stöðu íslenzks efnahagslífs en víða innan þess og yrði þar í hópi mikils minnihluta ríkja þess sem það gera. Við myndum greiða þessa styrki úr eigin vösum og gott betur. 17 af 27 ríkjum sambandsins fá meira en þau leggja að mörkum. 5% hlutdeild í einum alþingismanni Sömuleiðis talaði Magnús um áhrif Íslands á ákvarðanir innan Evrópusambandsins. Fyrir ekki löngu talaði hann um hugsanleg áhrif í þeim efnum í grein á Vísi. Valdið yfir íslenzkum málum sem sagt framselt fyrir hugsanleg áhrif. Vægi landsins færi enda allajafna fyrst og fremst eftir íbúafjölda í þeim efnum. Þannig yrði vægið 0,08% í ráðherraráði sambandsins, valdamestu stofnun þess, sem yfirfært á Alþingi væri aðeins á við 5% hlutdeild í einum þingmanni. „Sætið við borðið“. Magnús talaði einnig um ríkisstjórn Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnina) en þar sitja ekki fulltrúar ríkjanna heldur embættismenn sambandsins þó þeir hafi verið tilnefndir af þeim enda óheimilt að ganga erinda heimalanda sinna. Þá nefndi Magnús þá Íslendinga sem fengju vel launuð störf í Brussel. Þar er einmitt um þröngan hóp sem myndi hagnast hvað mest á inngöngu í sambandið. Hópur sem bæði ég og Magnús tilheyrum sem sérfræðingar í Evrópumálum. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar