Hvað er að gerast í skapandi greinum? Erla Rún Guðmundsdóttir skrifar 9. mars 2026 09:01 Starfandi í menningu og skapandi greinumhefur fækkað um rúm 19% á síðustu tíu árum. Á sama tímabili hefur starfandi á íslenskum vinnumarkaði alls fjölgað um 20%. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum Hagstofunnar um starfandi í menningu og skapandi greinum. Samkvæmt tölunum fækkaði starfandi í menningu og skapandi greinum úr 16.000 árið 2016 í tæplega 13.000 árið 2025. Þessi þróun vekur athygli og gefur tilefni til að staldra við og spyrja: Hvað er að gerast á vinnumarkaði menningar og skapandi greina? Hvað kemur fram? Fyrir utan heildarþróun draga tölur Hagstofunnar fram muninn á milli ýmissa hópa innan menningar og skapandi greina, t.d. eftir kyni, ráðningarsambandi og tegund starfs. Gerður er greinarmunur á þremur tegundum starfa: 1) skapandi störf í skapandi atvinnugreinum; 2) önnur störf í skapandi atvinnugreinum; og 3) skapandi störf í öðrum atvinnugreinum. Skýringarmynd um tegundir starfa í menningu og skapandi greinum (mynd frá Rannsóknasetri skapandi greina). Þegar heildarfjöldinn er brotinn niður sést að þróunin milli 2016 og 2025 er ekki jöfn heldur birtist með ólíkum hætti eftir hópum. Eftir tegund starfa: 26% fækkun í skapandi störfum í skapandi atvinnugreinum. 14% fækkun í skapandi störfum í öðrum atvinnugreinum. 12% fækkun í öðrum störfum í skapandi atvinnugreinum. Eftir ráðningarsambandi, í menningu og skapandi greinum alls: 21% fækkun á launafólki. 3% fækkun á sjálfstætt starfandi. 29% fækkun á þeim sem eru bæði sjálfstætt starfandi og launafólk. Eftir kyni, í menningu og skapandi greinum alls: 30% fækkun á körlum alls. 7% fækkun á konum alls. 18% fækkun á sjálfstætt starfandi körlum. 27% fjölgun á sjálfstætt starfandi konum. Þegar þróunin er skoðuð yfir tímabilið í heild sést jafnframt að hún var ekki línuleg. Starfandi í menningu og skapandi greinum fækkaði jafntog þétt frá 2016 til 2020, fjölgaði á árunum 2020–2023, en fækkaði svo á ný um heil 25% frá 2023 til 2025. Á því tímabili fækkaði sérstaklega í hópi þeirra sem sinna skapandi störfum, um 36% í skapandi greinum og um 27% í öðrum greinum, en fjöldi starfandi í öðrum störfum í skapandi greinum stóð nánast í stað. Þá fækkaði sjálfstætt starfandi um 32% og launafólki um 24% en samdrátturinn á meðal launafólks var 38% hjá körlum og 8% hjá konum. Hvað þýðir þetta? Tölurnar byggja á vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem er úrtaksrannsókn þar sem spurt er um atvinnuþátttöku í tiltekinni viðmiðunarviku, við aðalstarf og eitt aukastarf. Slík aðferðafræði hefur marga kosti en einnig ákveðnar takmarkanir, til dæmis þegar kemur að geirum þar sem störf eru oft tímabundin og verkefnadrifin, og þar sem fólk vinnur fyrir sér með mörgum ólíkum verkefnum á sama tíma. Menning og skapandi greinar eru auk þess víðfeðmur geiri sem spannar allt frá listum og menningararfi, til fjölmiðla, sjónvarps og kvikmyndagerðar, og hönnunar og tölvuleikjaframleiðslu. Mikilvægt er að hafa þetta í huga við túlkun niðurstaða. Í ljósi þess sem kemur fram í tölunum má setja fram nokkrar mögulegar skýringar og spurningar sem vert er að skoða nánar: Skapandi störf kunna í auknum mæli að vera að færast út á jaðar vinnumarkaðarins, til dæmis í tímabundin verkefni eða minni aukastörf sem mælingar ná síður að fanga. Einnig er mögulegt að verkefni sem áður voru unnin af fólki í sérhæfðum skapandi störfum falli í auknum mæli undir almennari starfstitla, til dæmis ef grafísk hönnun eða önnur skapandi vinna er skilgreind sem hluti af starfi markaðs- eða samskiptafulltrúa. Samdráttur í einstökum undirgreinum getur haft áhrif á heildarmyndina. Til dæmis hefur töluverð umræða verið um stöðu kvikmyndageirans undanfarið. Þá hefur Bandalag íslenskra listamanna ítrekað bent á að listamenn leiti í auknum mæli í önnur störf eða út fyrir landsteinana. Þróunin er áberandi mismunandi eftir kyni og hefur körlum fækkað mun meira en konum. Ein möguleg skýring gæti verið sú að karlar leiti frekar í störf í öðrum greinum þar sem laun eru hærri eða atvinnuöryggi meira, sérstaklega þegar verkefnum fækkar eða fjármögnun er óáreiðanleg. Önnur möguleg skýring gæti verið að konur starfi í meira mæli innan opinberra menningarstofnana, á meðan karlar eru oftar í verkefnadrifnum greinum þar sem sveiflur í verkefnum og fjármögnun geta haft meiri áhrif á fjölda starfandi. Loks þarf að hafa í huga að tölurnar byggja á úrtaksrannsókn í tiltölulega litlu samfélagi. Sveiflur í úrtaki geta haft áhrif á niðurstöður milli ára og undirstrika mikilvægi þess að skoða þróunina með fleiri gagnasöfnum og ítarlegri greiningu. Hvað er hægt að gera? Ýmislegt getur legið að baki þeirri þróun sem birtist í tölum Hagstofunnar, eins og rakið er hér að framan. Áður en dregnar eru of afgerandi ályktanir um stöðu og þróun skapandi greina er því mikilvægt að rýna gögnin betur og afla frekari upplýsinga. Nokkur skref gætu hjálpað til við að skýra myndina: Í fyrsta lagi er mikilvægt að skoða vel næstu uppfærslu á menningarvísum Hagstofunnar, þar sem fjöldi starfandi er brotinn niður eftir einstökum menningargreinum. Þó er vert að nefna að þær tölur ná eingöngu til launafólks í skapandi greinum (ekki til sjálfstætt starfandi og ekki til þeirra sem starfa í skapandi störfum í öðrum greinum). Í öðru lagi væri gagnlegt að fara í dýpri greiningu á gögnum Hagstofunnar, til dæmis með sérvinnslum úr vinnumarkaðsrannsókninni og/eða skráargögnum. Slík vinna gæti hjálpað til við að rýna betur samsetningu og þróun ólíkra hópa innan vinnumarkaðar menningar og skapandi greina. Í þriðja lagi væri gagnlegt að kanna stöðuna beint meðal þeirra sem starfa í menningu og skapandi greinum, til dæmis með spurningalistakönnun eða viðtölum. Slík gögn gætu varpað ljósi á starfsaðstæður og hvort fólk sé að hætta störfum, færa sig í önnur störf eða vinna í auknum mæli í tímabundnum eða smærri verkefnum, sem mælingar ná síður utan um. Það sem þessar niðurstöður sýna fyrst og fremst er að þróunin í menningu og skapandi greinum er flóknari en einfaldar heildartölur gefa til kynna. Þær kalla því ekki aðeins á umræðu heldur einnig á markvissa greiningu á því hvernig vinnumarkaður menningar og skapandi greina er í raun að þróast. Höfundur er forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina og doktorsnemi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir Skoðun Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Lyftum arkitektúrnum upp Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar Skoðun Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar Skoðun Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar Skoðun Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Gefum sköpunargáfu barna það pláss sem hún á skilið Guðrún Lína Thoroddsen skrifar Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Skólaskeyti til Garðbæinga! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Sjá meira
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar
Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun