Enski boltinn

Fimm­tán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fimmtán ára fótboltakona sýnir hér tilfinningar í leik en myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fimmtán ára fótboltakona sýnir hér tilfinningar í leik en myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Lukas Schulze

Fimmtán ára leikmaður unglingaliðs Oxford United kvenna lést á hörmulegan hátt eftir að hafa hnigið niður í leik stúlknaakademíu enska fótboltafélagsins gegn Fulham en leikurinn var spilaður á æfingasvæði félagsins.

Leikmaðurinn hét Amelia Aplin og félagið minntist hennar á miðlum sínum sem góðs liðsfélaga, dóttur, vinkonu og leikmanns sem einfaldlega elskaði leikinn.

„Unglingsstúlku var veitt bráðameðferð á staðnum. Hún var flutt á sjúkrahús en var því miður úrskurðuð látin síðar um kvöldið. Engar grunsamlegar aðstæður voru fyrir hendi og er málið nú komið á borð dánardómstjóra,“ sagði talsmaður lögreglunnar við enska miðla.

„Það er með gríðarlegri sorg sem við tilkynnum andlát hinnar fimmtán ára gömlu akademíuleikkonu, Ameliu Aplin. Amelia hneig niður í leik stúlknaakademíunnar gegn Fulham á æfingasvæði félagsins í Horspath í gær síðdegis,“ segir á miðlum Oxford United og þar er áfram skrifað:

„Hugur allra hjá Oxford United og innilegar samúðarkveðjur eru frá fjölskyldu, vinum, liðsfélögum og þjálfurum Ameliu. Við viljum koma á framfæri þakklæti okkar fyrir störf heilbrigðisstarfsfólks bæði hjá Oxford United og Fulham Football Club, ásamt neyðarþjónustunni.“

„Félagið mun veita fjölskyldu Ameliu, leikmönnum, þjálfurum og starfsfólki sem þessi hörmulegi atburður hefur áhrif á, stuðning. Við biðjum um að einkalíf fjölskyldunnar sé virt á þessum ótrúlega erfiðu tímum,“ segir á miðlum Oxford United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×