„Þurfum aðeins meira frá okkar leikmönnum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. mars 2026 21:53 Borche Ilievski, þjálfari ÍR. Vísir/Hulda Margrét „Þetta var klárlega stór sigur fyrir okkur,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, eftir þriggja stiga sigur liðsins gegn ÍA í 19. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. „
Sérstaklega fyrir þær sakir hvernig við vinnum þennan leik. Þetta var ekki mjög fallegt í kvöld, kannski af því að það var mikil pressa eða af því að það er búin að vera tveggja vikna pása.“ „Eftir góða byrjun hættum við eiginlega bara að spila í miðjum 1. leikhluta og út allan 2. leikhluta. Svo gerum við einhverjar breytingar á varnarleiknum og ÍA skorar ekki nema 33 stig allan seinni hálfleikinn. Við erum enn að leita að okkar takti og ég vona að hann komi með þessum sigri. Það er ekki jafn mikil pressa núna og leikmenn ættu að vera einbeittir á það að spila og njóta leiksins.“ Hann nýtti þó einnig tækifærið og hrósaði leikmanni ÍA. „Við byrjuðum leikinn vel, en svo fór eitthvað úrskeiðis varnarlega. Og það smitaðist út í sóknarleikinn. Auðvitað var Darryl (Morsell, leikmaður ÍA) virkilega góður í kvöld og nánast óstöðvandi. Við reyndum að halda honum frá teignum þar sem hann er mjög góður skotmaður, en svo var hann líka að setja þrista í kvöld sem kom okkur svolítið á óvart. En hann var mjög góður bæði varnar- og sóknarlega.“ „En við nýttum alla þá orku sem við áttum inni til að reyna að snúa þessu við á síðustu fimm mínútum leiksins og það tókst. Ég er mjög ánægður með það.“ Hann gat þó ekki sleppt því að nefna sinn eigin leikmann, Jackob Falko, sem var einnig frábær í kvöld og tók svo gott sem yfir leikinn þegar mest á reyndi. „Falko tekur réttar ákvarðanir og grípur tækifærin, rétt eins og við búumst við af honum. Hann var frábær, en við vorum líka að fá mjög mikilvæg stig úr stórum skotum frá Matej Kavas.“ „Í heildina þurfum við aðeins meira frá okkar leikmönnum, en sem betur fer er minni pressa á okkur núna og við þurfum að byrja að njóta leiksins meira. Við þurfum að byrja að spila alvöru körfubolta og finna okkar ástríðu.“ „Við fundum fyrir pressunni því þetta var mikilvægur leikur fyrir okkur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni og fyrir þá í fallbaráttunni og bæði lið voru sterk bæði líkamlega og andlega.“ ÍR-ingar mæta Álftanesi í næstu umferð, en Álftnesingar eru tveimur stigum á eftir ÍR í baráttuni um sæti í úrslitakeppninni. Liðið á því gríðarlega mikilvægan leik framudan. „Já, Álftanes næst og þessar þrjár umferðir sem eru eftir eru gríðarlega mikilvægar. Næsti leikur á móti Álftanesi gæti gefið okkur skýra mynd af því hvort við verðum í úrslitakeppninni eða ekki. Við undirbúum okkur bara fyrir þann leik og við vitum hvað við þurfum að gera til að vinna,“ sagði Borche að lokum.
Bónus-deild karla ÍR ÍA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira