Reykjavík í umferðarteppu – afleiðing rangrar stefnu Þórir Garðarsson skrifar 5. mars 2026 14:00 Umferðarteppur í Reykjavík eru afleiðing stefnu og aðgerða þeirra sem stjórna borginni. Tafir í umferðinni í Reykjavík hafa aukist verulega. Ferðatími lengist, álag á helstu götum borgarinnar eykst og sífellt fleiri borgarbúar eyða dýrmætum tíma í biðröðum á leið til og frá vinnu. Þetta er oft útskýrt með fólksfjölgun og auknum bílafjölda. En það skýrir aðeins lítinn hluta vandans. Stærsti hluti skýringarinnar er einfaldari: samgönguinnviðir borgarinnar hafa ekki verið byggðir upp í takt við vöxt hennar. Reykjavík hefur stækkað hratt. Íbúum hefur fjölgað, ný hverfi hafa risið og ferðalögum innan borgarinnar fjölgað að sama skapi. Samhliða þessu hefði þurft að efla afköst gatnakerfisins og bæta tengingar milli hverfa. Það hefur hins vegar ekki verið forgangsverkefni borgaryfirvalda. Í stað þess hefur skipulagsstefna borgarinnar um árabil byggst á þeirri hugmynd að draga eigi úr notkun einkabílsins. Þéttingarstefna og skipulag samgangna hafa því fyrst og fremst miðað að því að breyta ferðavenjum borgarbúa – án þess þó að þeir hafi verið spurðir. Vandinn er sá að raunveruleikinn fylgir ekki þeirri hugmyndafræði. Samkvæmt ferðavenjukönnunum fara langflestar ferðir á höfuðborgarsvæðinu enn fram með einkabíl. Þrátt fyrir áratug af stefnumótun sem átti að breyta þessu hafa ferðavenjur íbúa breyst lítið. Þegar stefna stjórnvalda gengur út frá öðrum forsendum en raunverulegri hegðun fólks skapast sú staða sem við sjáum í dag: þrengsli, tafir og sívaxandi umferðarteppur. Innviðaskuldin í samgöngum er því ekki aðeins afleiðing vaxtar borgarinnar. Hún er einnig bein afleiðing pólitískrar stefnu. Borgarlínan – dýrasta tilraun borgarinnar Í stað þess að ráðast fyrst í að styrkja helstu stofnbrautir og bæta flæði umferðar hefur borgin sett alla áherslu á eitt verkefni: Borgarlínuna. Verkefnið hefur verið kynnt sem lykillausn á samgönguvanda höfuðborgarsvæðisins. En þegar það er skoðað nánar vaknar einföld spurning: fyrir hvern er þessi lausn í raun? Fyrstu áfangar Borgarlínunnar liggja fyrst og fremst um miðborgarsvæði og þéttari kjarna borgarinnar. Borgarlínan gerir ekkert fyrir þær tugþúsundir fjölskyldna sem búa til dæmis í Grafarvogi, Árbæ, Breiðholti og Grafarholti, hverfum þar sem dagleg ferðalög byggjast að langmestu leyti á bíl. Þessi hverfi koma ekki við sögu í fyrstu áföngum Borgarlínunnar. Á sama tíma hafa kostnaðaráætlanir Borgarlínunnar vaxið hratt. Þegar upp er staðið gæti verkefnið kostað hundruð milljarða króna. Því vaknar eðlilega spurning sem sífellt fleiri borgarbúar spyrja: er verið að ráðast í dýrasta samgönguverkefni í sögu borgarinnar án þess að það leysi þann vanda sem flestir finna fyrir í dag? Lausnin hlýtur að byggja á raunveruleikanum Samgöngukerfi borgar verður að byggja á því hvernig fólk ferðast í raun og veru. Ekki á því hvernig stjórnmálamenn óska þess að fólk ferðist. Svo lengi sem langflestar ferðir eru farnar með einkabíl verður að tryggja að gatnakerfið ráði við það. Það þýðir að styrkja þarf stofnbrautir, bæta tengingar milli hverfa og byggja upp samgönguinnviði í takt við vöxt borgarinnar. Almenningssamgöngur geta verið mikilvægur hluti lausnarinnar. En þær geta ekki komið í staðinn fyrir heildstæða uppbyggingu samgöngukerfisins. Ef Reykjavík ætlar að losna úr umferðarteppunum þarf fyrst og fremst að horfast í augu við raunveruleikann. Borg sem byggir skipulag sitt á óraunhæfum forsendum er dæmd til að þurfa að glíma við sífellt vaxandi vandræði. Og það er einmitt staðan sem Reykjavík stendur frammi fyrir í dag. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar