Greiða skaðabætur vegna fjarveru Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 12:30 Lionel Messi var hvíldur í leiknum og margir miðakaupendur fóru svekktir heim. Hann var ekki einu sinni á bekknum, ekki frekar en nokkrar aðrar stjörnur Inter Miami. Getty/Richard Sellers/ Lionel Messi er mikið aðdráttarafl í bandarísku fótboltadeildinni og það getur verið dýrkeypt fyrir félögin sem mæta honum ef argentínski snillingurinn er ekki inni á vellinum. Það sannaðist þegar lið í MLS-deildinni þurfti að greiða skaðabætur.
Sumir myndu halda að það væri betra fyrir félög að þurfa ekki að glíma við það krefjandi verkefni að stoppa einn allra besta fótboltamann sögunnar en það kom í bakið á einu félagi. Vancouver Whitecaps og Major League Soccer þurfa að greiða um 347 þúsund kandaíska dollara í skaðabætur eftir að Lionel Messi mætti ekki í leik árið 2024. Vonsviknir áhorfendur, sem höfðu keypt miða á leikinn í Vancouver, höfðuðu hópmálsókn. Whitecaps hafði notað Messi sem aðdráttarafl í stórri auglýsingaherferð fyrir leikinn og miðaverð rauk upp úr öllu valdi. The Vancouver Whitecaps and MLS will have to pay out a CAN $475,000 ($347,000) settlement after Lionel Messi was featured in promotional material but did not show up to play a match in Canada in May 2024.📝 @AdamCrafton_ 🔗 https://t.co/JCPDpKUWzY pic.twitter.com/ber992pe2X— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) March 3, 2026 Messi lék þá sitt fyrsta heila tímabil í MLS. Vonbrigðin voru mikil þegar þáverandi þjálfari Inter Miami, Tata Martino, ákvað að hvíla bæði Messi, Luis Suárez og Sergio Busquets og sleppa ferðinni til Kanada til að spara þá fyrir komandi heimaleiki. Í júní 2024 var höfðuð hópmálsókn í nafni manns sem hafði keypt tvo miða fyrir yfir 400 kandaíska dollara, meira en 36 þúsund íslenskar krónur, í þeirri trú að hann myndi sjá Messi spila. Málsókninni var beint gegn MLS-deildinni og Whitecaps, sem neituðu sök. Nú hefur hins vegar verið gerð sátt til að forðast frekari lögfræðikostnað. Í samkomulaginu viðurkenna hvorki MLS né Whitecaps að hafa gert neitt rangt. Skaðabótaupphæðin, rúm 31 milljón í íslenskum krónum, verður gefin til þriggja góðgerðarsamtaka á Vancouver-svæðinu.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Sjá meira