Kjarnorkuvopnavæðing Norðurlanda Arnór Sigurjónsson skrifar 3. mars 2026 12:01 Ræða Macrons, forseta Frakklands í sjóherstöðinni Crozon s.l. mánudag markar tímamót í vörnum Evrópu. Þar boðaði hann endurnýjun á kjarnorkuherafla Frakklands sem telur um 300 kjarnaodda til að auka fælingarmátt landsins og efla öryggi Evrópu andspænis útþenslustríði Rússa og minnkandi áhuga Bandaríkjamanna á vörnum Evrópu. Forsetinn hefur boðið Póllandi, Hollandi, Grikklandi, Belgíu, Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð að taka þátt í þessari auknu kjarnorkuvopnavæðingu með það m.a. í huga að dreifa þessum strategíska fælingarmætti víðsvegar um Evrópu ef til átaka kemur. Samkvæmt þessu byggir samstarfið á sameiginlegri skipulagningu – og áætlanagerð þar sem kjarnorkuvopnum er beitt, sameiginlegum æfingum og undirbúningi að því að orustuflugvélar þessara ríkja geti borið kjarnorkuvopn. Frakkar ætla áfram sem áður að hafa endanlegan ákvörðunarrétt um það hvort frönsk kjarnorkuvopn eru notuð eða ekki. Eftir stendur sú áhugaverða niðurstaða að tvö Norðurlönd, Danmörk og Svíþjóð eru hluti af þessu samstarfi og Noregur er, að sögn að íhuga svar við boð um þátttöku. Ef þetta raungerist markar það tímamót í þróun öryggis- og varnarmála meðal Norðurlandanna sem hafa á undanförnum áratugum, líkt og Ísland, stuðst við kjarnorkufælingu Bandaríkjanna, en bannað staðsetningu kjarnorkuvopna innan eigin landamæra. Þeirri stefnu ætla Danir að framfylgja áfram, að minnsta kosti til að byrja með. En þessi stefnubreyting Norðurlandanna segir okkur að ógnarmat þeirra hefur breyst í grundvallaratriðum frá því sem áður var og að viðhorf bandarískra stjórnvalda gagnvart Evrópu valda því að nú er leitað leiða til að undirbyggja eigin varnir og öryggi með öðrum hætti. Það þýðir ekki að hlutverk Atlantshafsbandalagsins breytist hvað þetta varðar, en bregðist sú varnarstoð hafa þessi lönd fleiri valkosti í kjarnorkuvopnafælingu en verið hefur fram að þessu. Hvað Ísland varðar hlýtur þessi þróun að kalla á svör við því hvers vegna nágrannaþjóðir okkar eru að dreifa fjöreggjum eigin öryggis í fleiri körfur. Getur ástæðan verið sú að varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Evrópu séu ekki lengur taldar eins áreiðanlegar og áður var? Eða er áskorun Bandaríkjamanna um að Evrópa standi á eigin fótum í öryggis- og varnarmálum að koma fram með þessum hætti? Ef til vill er svarið hvoru tveggja. En mitt í þessum darraðadansi ætla íslensk stjórnvöld ekki að breyta neinu í framkvæmd íslenskra öryggis- og varnarmála. Algjör útvistun á vörnum landsins til erlendra aðila, og þá fyrst og fremst Bandaríkjamanna er stefna dagsins. Samkvæmt þessari stefnu eiga íslenskir ríkisborgarar ekki að taka þátt í því að verja Ísland. Ákvæði um herskyldu sem einu sinni var í stjórnarskrá landsins var fjarlægt. Engar íslenskar stofnanir hafa lagaskyldu, þjálfun, búnað eða getu til að taka til varna ef á Ísland er ráðist. Við erum með öll fjöregg öryggis- og varnarmála í einni körfu erlendra ákvarðana! Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Skoðun Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar