Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2026 09:31 Chris Kavanagh dómari sést hér fara í skjáinn í leik Manchester United og Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Getty/Mark Cosgrove Enska knattspyrnusambandið segist styðja tilraunir með „Football Video Support“ (FVS), einfaldaðan og ódýran valkost við myndbandsdómgæslu, VAR, sem felur í sér áskorunarkerfi fyrir knattspyrnustjóra.
Líkt og í nokkrum öðrum íþróttum fengju þjálfarar tvær áskoranir í hverjum leik, en ef áskorun er samþykkt halda þeir áskorunarrétti sínum. Breska ríkisútvarpið fjallar um þetta. Þetta kerfi er sérstaklega hannað fyrir deildir með takmörkuð fjárráð og krefst aðeins fjögurra myndavéla og ekki sérstaks myndbandsdómara. NEW: FA wants to trial ‘coach’s challenge’ for subjective VAR decisionsIdea is that coaches would be able to have two unsuccessful challenges per game for fouls or handballs.https://t.co/fyLD1sQSXm— Martyn Ziegler (@martynziegler) March 2, 2026 Þetta er jafnvel hugmynd sem íslenska deildin gæti mögulega útfært líka ef áhugi er fyrir hendi. Með því að færa ábyrgðina yfir á varamannabekkina stefnir enska knattspyrnusambandið að því að fækka stöðugum afskiptum og nota tæknina aðeins við augljós mistök. Mark Bullingham, framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins, sagði að kerfið „leggi í raun ábyrgðina á þjálfarann“ um að ákveða hvenær endurskoðun sé raunverulega nauðsynleg. Hann telur að komandi tilraunir muni hjálpa dómurum að sjá hvort þetta kerfi geti verndað leikflæðið betur en núverandi kerfi í efstu deildum. 🚨🚨| BREAKING: The FA wants to trial a “coach’s challenge” for subjective VAR calls.Managers would get two unsuccessful challenges per match on fouls or handballs.[@martynziegler] pic.twitter.com/J4jOofSAJw— CentreGoals. (@centregoals) March 2, 2026 Á meðan enska knattspyrnusambandið íhugar sína kosti á heimavelli er Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá FIFA, þegar að prófa þessar tilraunir annars staðar. Collina hefur haft umsjón með útbreiðslu kerfisins á ýmsum mótum fullorðinna og ungmenna um allan heim og heldur því fram að það sé nauðsynlegt að „lýðræðisvæða“ tæknina fyrir lönd sem hafa ekki efni á VAR.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira