„Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2026 08:00 Daniel Farke fær hér rauða spjaldið frá Peter Bankes dómara. Getty/Robbie Jay Barratt Daniel Farke, knattspyrnustjóri Leeds United, segist „aldrei ætla að skokka aftur“ eftir að hafa verið „niðurlægður fyrir framan allan heiminn“ með rauða spjaldinu sem hann fékk í lok heimaleiksins gegn Manchester City á laugardag.
Hinn 49 ára gamli Farke fór beint inn á Elland Road-völlinn þegar leiknum lauk til að ræða við dómarann Peter Bankes. Ósáttur við nokkrar ákvarðanir í harðri baráttu liðsins sem tapaðist 1-0 í ensku úrvalsdeildinni. Farke, sem var rekinn af velli í fyrsta sinn á sextán ára stjóraferli sínum, sagði að hann hefði ekki blótað eða notað ógnandi orðalag í garð Bankes og annarra dómara og að honum hefði verið sýnt rauða spjaldið áður en hann sagði nokkuð. Hann svaraði spurningunni um atvikið með ellefu mínútna löngu svari á blaðamannafundi sínum fyrir leikinn gegn Sunderland sem fer fram í kvöld. Sagði ekki eitt ljótt orð „Ég skokkaði yfir,“ sagði hann. „Ekki eitt ljótt orð. Engin blótsyrði eða ljótt orðbragð. Ég vildi bara spyrja hann hvers vegna hann bætti ekki við neinum [viðbótartíma]. Hann talaði ekki við mig og dró bara upp rauða spjaldið.“ „Að draga upp rautt spjald og niðurlægja mig fyrir framan allan heiminn, ég var ekki ánægður með það. Jafnvel aðstoðardómararnir voru í áfalli yfir því að rauða spjaldið var sýnt. Þetta er ekki eins og við eigum að vinna saman. Ég ber svo mikla virðingu fyrir dómurum.“ „Ég mun aldrei skokka aftur“ „Ég held að Peter hafi ekki gert þetta viljandi, hann mislas bara aðstæður. Ég mun aldrei skokka aftur.“ Fyrrverandi stjóri Norwich gæti áfrýjað brottvísuninni en hefur ekki enn ákveðið hvort hann muni gera það. „Ég er ekki viss um hvernig ferlið er og hvenær við getum áfrýjað. Ég get bara sagt ykkur að mér finnst þetta ekki eiga að vera rautt spjald,“ sagði Farke. „Þegar um augljós mistök hefur verið að ræða, og fyrir mér voru þetta augljós mistök, ætti að snúa ákvörðuninni við. Þetta er það sem ég hef upplifað þegar leikmenn fá rautt spjald fyrir mistök, því er hægt að snúa við, og ég býst við því sama,“ sagði Farke. View this post on Instagram A post shared by Men in Blazers (@meninblazers)
Enski boltinn Leeds United Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Fótbolti Mattías Kjeld valdi KR Íslenski boltinn Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Fleiri fréttir Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Sjá meira