Gakpo leit upp til Alberts Sindri Sverrisson skrifar 3. mars 2026 07:00 Albert Guðmundsson og Cody Gakpo voru samherjar hjá PSV Eindhoven. Samsett/Getty Liverpool-stjarnan Cody Gapko segir Albert Guðmundsson hafa verið fyrirmynd fyrir sig þegar þeir voru báðir leikmenn PSV Eindhoven á sínum tíma. Hann kveðst enn fylgjast með Alberti og framgöngu hans.
Gakpo ræddi um þetta í einkaviðtali við Kjartan Atla Kjartansson en brot úr því má sjá hér að neðan. Klippa: Gakpo lofaði Albert í hástert Hinn 26 ára gamli Gakpo var seldur til Liverpool frá PSV í ársbyrjun 2023, eftir að hafa verið hjá PSV frá unga aldri. Albert, sem er tveimur árum eldri en Gakpo, kom til PSV 18 ára gamall og átti eftir að raða inn mörkum í næstefstu deild, fyrir varaliðið Jong PSV, áður en hann fór svo á endanum til AZ árið 2018. „Mjög, mjög góður leikmaður“ „Albert var og er enn mjög góður leikmaður. Ég spilaði með honum í Jong PSV og svo smá í aðalliðinu, áður en hann fór,“ sagði Gakpo. „Albert var alltaf mjög, mjög góður leikmaður. Bjó yfir mjög mikilli tækni. Hann spilaði oftast sem „tía“ og vegna þess að hann er aðeins eldri en ég þá held ég að margir á mínum aldri… að við höfum litið upp til hans varðandi hvernig leikmaður hann var og hvað hann gerði með Jong PSV. Hann skoraði mörg mörk og gerði fullt af flottum hlutum á vellinum,“ sagði Gakpo. Albert yfirgaf Holland og gekk í raðir Genoa á Ítalíu snemma árs 2021, og fór svo þaðan til Fiorentina, og Gakpo hrífst enn af Íslendingnum: „Ég fylgist stundum með honum og hann er að gera mjög góða hluti. Ég samgleðst honum og hans fjölskyldu.“
Enski boltinn Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Sjá meira