Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 2. mars 2026 21:26 Jim Carrey tók við heiðursverðlaunum á César-kvikmyndahátíðinni í París síðasta fimmtudag. AP Skipuleggjendur César-kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin er ár hvert í París, hafa slegið á sögusagnir um að Jim Carrey, stórleikari og heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar, hafi ekki verið viðstaddur hana. Samsæriskenningar um að leikarinn hafi fengið eftirhermu til að mæta í hans stað á hátíðina hafa dreifst um netheima síðustu daga.
Gregory Caulier, skipuleggjandi hátíðarinnar, sendi frá sér yfirlýsingu til dægurmálablaðsins Variety þar sem hann segir sögusagnirnar rangar og að Carrey hafi sýnt viðburðinum mikinn áhuga frá því í fyrrasumar. „Hann var í marga mánuði að æfa þakkarræðuna sína, sem hann flutti á frönsku. Auk þess bað hann mig um að aðstoða sig með framburð á vissum orðum,“ er haft eftir Caulier. Þá bendir hann á að tólf nánir fjölskyldumeðlimir og vinir hafi fylgt leikaranum til Parísar á hátíðina. Sjálfur hefur Carrey ekki tjáð sig opinberlega um samsæriskenningarnar. Tilefni sögusagnanna þykir vera breytt útlit leikarans, sem hefur haldið sig til hlés undanfarin ár. Förðunarfræðingurinn Alexis Stone, sem farðað hefur margar af helstu stjörnum Hollywood og sérhæfir sig í umbreytandi förðun, veitti orðrómunum byr undir báða vængi í gær þegar hann birti nærmyndir af Carrey á hátíðinni auk myndar af hárkollu og grímu sem líkist andliti Carrey á Instagram og skrifaði við myndina „Alexis Stone sem Jim Carrey í París.“ View this post on Instagram A post shared by Alexis Stone (@thealexisstone) Síðan þá hefur Marleah Leslie, útgefandi Carrey til margra ára, áréttað við bandaríska slúðurmiðilinn TMZ að vitaskuld hafi Carrey sjálfur verið við hátíðina í París og tekið á móti heiðursverðlaununum. Hollywood-stjörnur á borð við Megan Fox og Katy Perry hafa síðan brugðist við færslu Stone. „Ég má ekki við meiri kvíða núna, ég verð að fá að vita hvort þetta sé alvöru,“ segir sú fyrrnefnda í athugasemd. Málið hefur sömuleiðis vakið athygli hér á landi en undir færslu um málið í lokaða Facebook-hópnum Beauty Tips er að finna hátt í áttatíu athugasemdir. Í þaulæfðri þakkarræðu sinni á frönsku á fimmtudag minntist Carrey ýmissa brautryðjenda í franskri kvikmyndagerð og rakti tengsl sín við Frakkland en þaðan á hann forföður sem fluttist til Kanada, hvar Carrey fæddist.
Bíó og sjónvarp Hollywood Frakkland Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira