Skilaboðaskjóðan sýnd á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 2. mars 2026 21:01 Ronja Lena Hafsteinsdóttir, sem leikur Möddu mömmu og Viktor Logi Sigurðsson, sem leikur litla dverg. Vísir Leikhúsið á Selfossi iðar allt af lífi þessa dagana því þar er verið að sýna barnaleikritið „Skilaboðaskjóðan”, sem kom fyrst út árið 1986 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Sautján leikarar taka þátt í sýningunni en alls koma um þrjátíu manns að henni á einn eða annan hátt.
Hér erum við að tala um litla leikhúsið við Sigtún eins og það er oftast kallað af heimamönnum, en þar fara sýningarnar fram. Leikfélag Selfoss er eitt af öflugu áhugaleikfélögum landsins. En Skilaboðaskjóðan, hvers konar leikrit er það? „Þetta er fjölskylduleikrit og þetta er alveg stórkostlegt. Þetta er svona ævintýraskógur en þetta er ævintýraverk, sem fjallar um dreng, sem tekinn er af Nátttröllinu og þá þurfa allar náttúrupersónur í veröldinni að safnast saman og bjarga honum,” segir Gunnar Gunnsteinsson, leikstjóri. Sýningarnar fara fram í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi.Vísir Og leikararnir að standa sig vel eða hvað? „Já, já, þetta eru alveg frábærir leikarar. Þetta er líka æðislegt hús að vera í, þetta er svo mikill ævintýraheimur hjá okkur,” segir Gunnar. Töluvert er sungið í leikritinu, sem Þorvaldur Þorsteinsson skrifaði og tónlistin er eftir Jóhann G. Jóhannsson. En hvað segja leikararnir sjálfir, hvað finnst þeim um verkið og hvers konar verk er þetta? „Mjög fjölbreytt, fjölbreyttir karakterar og ævintýri. Þetta sýnir að allir geta verið saman, já, sama hversu öðruvísi þeir eru, þetta er svona gaman og fjölbreytt,” segja þau Ronja Lena Hafsteinsdóttir, sem leikur Möddu mömmu og Viktor Logi Sigurðsson, sem leikur litla dverg. En af hverju ætti fólk að fara á sýninguna? „Af því að þetta er bara mergjað stuð og alltaf gaman að fara í leikhús. Bara endilega látið sjá ykkur, komið á Skilaboðaskjóðuna, við hlökkum til að sjá ykkur öll,” segir Ronja Lena.
Árborg Leikhús Mest lesið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Tónlist Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Emmsjé edrú í sjö ár Lífið Fleiri fréttir Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Sjá meira