Þegar landið logar Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 3. mars 2026 07:31 Gróður hefur aukist á Íslandi í gegnum árin, sumarbústaðahverfi hafa byggst upp víða með vaxandi skógum og veðráttan breyst þannig að hætta á gróðureldum hefur aukist Gróðureldar á Íslandi verða oftast þegar kviknar í sinu í þurru veðri en geta einnig orðið af mannavöldum. Einnig hafa gróðureldar kviknað í kringum eldsumbrot. Eldur getur komið upp í lágum gróðri jafnt sem háum skógum og líkt og nýjustu tilfelli sýna okkur, á mismunandi árstíma. Lítill neisti getur haft miklar afleiðingar Mikilvægt er að fólk fari varlega með eld og aðra neistagjafa úti í náttúrunni. Fyrstu viðbrögð eru að reyna að slökkva eldinn ef mögulegt er en síðan þarf að láta neyðarlínuna vita í síma 112, gefa upp staðsetningu og láta vita hvort fólk sé í hættu. Gera þarf fólki sem gæti verið í hættu viðvart og huga að flóttaleiðum þannig að fólk leggi sig ekki í hættu. Nauðsynlegt er að hafa eigið öryggi alltaf í forgangi. Rétt viðbrögð í upphafi geta haft mikið að segja. Ingibergur Þór Jónsson Mikilvægar öryggisráðstafanir Gróðureldar sem kviknað hafa fyrir mistök eða vegna misferlis hafa aukist undanfarin ár. Í gömlum lúpínubreiðum getur safnast upp talsverður eldsmatur og ástæða er til að gera viðeigandi ráðstafanir þar sem miklar lúpínubreiður eða annar gróður eru við sumarbústaði eða mannvirki. Best er að hafa gróðurlítið eða gróðursnautt svæði allt að 1,5 metra breitt næst byggingu. Eldklöppur, skóflur eða önnur áhöld og vatn ættu alltaf að vera tiltæk og forðast skal að safna rusli upp við hús eða í skógi. Eldfim efni svo sem bensín, gaskúta, áburð eða hjólbarða þarf að geyma á öruggum stöðum með góðu aðgengi. Þegar gróður er þurr getur lítill neisti orsakað mikinn eld. Sýna þarf sérstaka aðgát í langvarandi þurrkum og hvassviðri og fara varlega með vélar og eld úti við. Ef til stendur að kveikja eld úti við þarf að gera það á þar til gerðum svæðum, einungis á opnu svæði og ganga úr skugga um að eldfim efni séu ekki nálæg. Neistar geta fokið talsverða vegalengd frá eldstæði og því þarf að sýna sérstaka aðgát og slökkva vel í eldi áður en hann er yfirgefinn, bleyta vel í, moka sandi eða mold yfir og ganga úr skugga um að ekki finnist neinn hiti í eldstæðinu. Ekki má leggja einnota grill beint á gras, gróður eða önnur brennanleg efni og ætti undirlagið að vera möl eða steinar. Gera þarf flóttaáætlun um hvert er hægt að flýja ef eldur kemur upp. Mikilvægt er að kynna sér hvaða leiðir eru færar út af því svæði sem dvalið er á og hvar öruggari svæði eru. Athuga þarf að vindátt getur stýrt því hvaða leið er farin og kynna þarf sér leiðir bæði fyrir akandi og fótgangandi af svæðinu. Einnig þarf að ákveða stað þar sem safnast er saman ef neyðarástand skapast. Gott getur verið að kynna sér hvar læki, vötn og gróðurminni svæði er að finna í nágrenninu. Ingibergur Þór Jónsson Skipulag skóga og sumarhúsahverfa Huga þarf að skipulagi skóga þegar plöntum er plantað og gæta þess að skógurinn sé ekki of þéttur og einnig ætti að hafa í huga brunahólfun með varnarlínum. Einnig þarf að huga að flóttaleiðum úr skóginum og hafa nokkrar leiðir. Aðgengi að vatni er mikilvægt og setja ætti upp stöðvar með eldklöppum hér og þar á svæðinu. Nauðsynlegt er að tryggja aðgengi slökkviliðs og annarra björgunaraðila að útivistarsvæðum og sumarhúsahverfum. Vegirnir þurfa að geta borið þung ökutæki og ef mikill gróður er við vegi þarf að grisja hann reglulega þannig að hann þrengi ekki að akstursleiðum. Tryggja þarf aðgang að vatni til slökkvistarfa og best er að gera það í samstarfi við slökkvilið svæðisins þannig að allir séu upplýstir um hvar slökkvivatn er að finna. Einnig þarf að skilgreina gróðurlaus belti til að varna því að gróðureldar breiðist óhindrað út. Ingibergur Þór Jónsson Sameiginleg ábyrgð Almannahagsmunir eru miklir þegar kemur að því að koma í veg fyrir gróðurelda. Tryggja þarf öryggi og vernd lífs og eigna. Viðbragðs- og rýmingaráætlanir þurfa að vera fyrir hendi en mikilvægt er að fræða einnig almenning um forvarnir og fyrstu viðbrögð. Við berum öll ábyrgð á að huga að öryggi í okkar nærumhverfi og ganga um náttúruna af forsjálni og virðingu. F.h. Eldvarnabandalagsins,Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá. Myndir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, ljósmyndari: Ingibergur Þór Jónsson. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrefna Sigurjónsdóttir Slysavarnir Gróðureldar Gróðureldar á Íslandi Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar