Áhorfendur hlupu inn á völlinn og sneru Messi niður í jörðina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2026 19:18 Lionel Messi er orðinn vanur því að aðdáendur hlaupi inn á völlinn og í átt að honum en ekki þó að hann endi í grasinu eftir að hafa verið togaður niður. Getty/Leopoldo Smith Ástríðan í kringum Lionel Messi skapaði enn og aftur óvænta uppákomu í vináttuleik Inter Miami og Independiente del Valle í Púertó Ríkó, leik sem var færður fram í tímann þegar Messi gat ekki spilað vegna meiðsla.
Nú var hann aftur á móti leikfær og aðdáendur hans Púertó Ríkó fengu að sjá hann í eigin persónu. Áhuginn á honum kallaði þó fram atvik sem hefði getað endað mun verr. La visita de Lionel Messi a Puerto Rico desató la locura total durante el amistoso entre Inter Miami CF e Independiente del Valle, un hincha logró acercarse al jugador, pero al ser interceptado por seguridad, la acción terminó con ambos en el suelo.📌Manténgase informado en… pic.twitter.com/5OOHSsbPuh— EL DEBER (@grupoeldeber) February 27, 2026 Messi endaði nefnilega á jörðinni eftir að aðdáandi, sem hljóp inn á völlinn, greip í hann og togaði hann niður. Messi byrjaði ekki leikinn en kom inn á sem varamaður og lenti í óþægilegri aðstöðu seint í leiknum. Einn af nokkrum aðdáendum sem réðust inn á völlinn hljóp beint að númer tíu hjá Inter Miami og greip fast í hann. Öryggisverðir eltu einstaklinginn og í tilraun til að stöðva hann varð það til þess að Messi féll í grasið. Þrátt fyrir atvikið gerði Messi gæfumuninn. Argentínumaðurinn skoraði úr vítaspyrnu á 69. mínútu og tryggði Inter Miami 2-1 sigur á Independiente del Valle. Fyrir vináttuleikinn í Púertó Ríkó hafði Inter Miami spilað þrjá undirbúningsleiki: 3-0 tap gegn Alianza Lima, 2-1 sigur á Atlético Nacional og 2-2 jafntefli gegn Barcelona frá Guayaquil. Þeir töpuðu síðan 3-0 fyrir Los Angeles FC í opnunarleik MLS-deildarinnar, þar sem þeir eru ríkjandi meistarar. Undirbúningstímabiið og byrjun tímabilsins hefur því ekki verið alltof sannfærandi hjá meisturunum. CHAOS IN PUERTO RICO AS MESSI GETS KNOCKED DOWN! 🚨🚨Security issues broke out during Inter Miami vs Independiente del Valle as fans stormed the pitch trying to take photos with Messi and ended up knocking him to the ground. ❌📲⚽️#LionelMessi #InterMiami #MLS #Football pic.twitter.com/5IiAAlTATG— MARCA in English 🇺🇸 (@MARCAinENGLISH) February 27, 2026
Bandaríski fótboltinn Púertó Ríkó Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Sjá meira