Samstarf

Í hvað eru peningarnir þínir að fara?

Aurbjörg
Af hverju vitum við ekki hvert peningarnir okkar fara?
Af hverju vitum við ekki hvert peningarnir okkar fara?

Flest heimili kannast við tilfinninguna í lok mánaðar: Launin komu inn en samt virðist minna standa eftir en búist var við. Kreditkortareikningar reynast hærri en áætlað var og spurningin vaknar aftur: Hvert fóru peningarnir?

Á tímum hækkandi framfærslukostnaðar og aukinnar óvissu í efnahagsmálum skiptir raunveruleg yfirsýn meira máli en nokkru sinni fyrr. En þrátt fyrir fjölmargar sjálfvirkar bókhaldslausnir á markaði sýna bæði rannsóknir og reynsla fjármálaráðgjafa að yfirsýn ein og sér er ekki nóg. Fólk þarf að skilja fjármálin sín og taka virkan þátt í þeim, ekki bara fylgjast með þeim.

Yfirsýn byrjar á því að sjá heildarmyndina

Ný vara frá Aurbjörgu, Dagleg fjármál sem hægt er að lesa um betur hér, byggir á einfaldri en áhrifaríkri hugmynd: að gera tekjur og útgjöld sýnileg á myndrænan hátt. Þannig má sjá hvernig peningarnir flæða frá launum yfir í ráðstöfunartekjur og þaðan í fasta liði, breytilegan kostnað og sparnað. Það sem kemur inn og það sem fer út sést á einum stað.

Ein mynd segir meira en langur listi af færslum.

Virk þátttaka skapar raunverulega breytingu

Ólíkt sjálfvirkum lausnum þar sem gögn eru sótt beint úr banka krefst Dagleg fjármál virkrar þátttöku notandans. Tekjur eru skráðar inn, útgjöld flokkuð og markmið sett.

„Góð yfirsýn yfir tekjur og útgjöld er lykilatriði í heilbrigðum fjármálum og grunnurinn að öllum öðrum ákvörðunum okkar. Án hennar er ómögulegt að skipuleggja sparnað, fjárfestingar eða niðurgreiðslur lána,“ segir Björn Berg, fjármálaráðgjafi.

Hann bendir á að það eitt að skrá sjálfur inn upplýsingar breyti hegðun og auki ábyrgð. Þegar fólk sér með eigin augum hversu mikið fer í ákveðna liði hvort sem það eru lán, matarkostnaður eða áskriftir, verður auðveldara að forgangsraða og taka upplýstar ákvarðanir.

Fyrsta skrefið í stærri ákvörðunum

Skýr mynd af daglegum útgjöldum er ekki markmið í sjálfu sér, hún er grunnur að stærri ákvörðunum. Hvort sem um er að ræða sparnað, niðurgreiðslu lána, fjárfestingar eða undirbúning fyrir framtíðina.

Dagleg fjármál eru nú hluti af Plús áskrift Aurbjargar og bætast við heildstætt úrval lausna sem hjálpa heimilum að taka upplýstar fjármálaákvarðanir.

Nánari upplýsingar má finna á www.aurbjorg.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×