Innherji

„Kom veru­lega á ó­vart“ að ekki tókst að semja um verð vegna mikillar sam­legðar

Hörður Ægisson skrifar
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka en greinendur segja greinileg tækifæri vera til vaxtar í þóknanatekjum bankans og hafa hækkað virðismat sitt á félaginu.
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka en greinendur segja greinileg tækifæri vera til vaxtar í þóknanatekjum bankans og hafa hækkað virðismat sitt á félaginu. Vísir/Anton Brink

Samruni Íslandsbanka og Skaga hefði getað skilað báðum félögum töluverðum ávinningi, jafnvel mun meiri en þeirri áætluðu samlegð sem var gefin út, og því kom það „verulega á óvart“ að ekki hafi tekist að endursemja um nýja verðskilmála, að sögn hlutabréfagreinenda. Verðmat á Íslandsbanka hefur verið hækkað nokkuð, meðal annars vegna væntinga um betri arðsemi, en uppfærð fjárhagsleg markmið stjórnenda eru sögð vera „afar metnaðarfull“ en alls ekki ógerleg.


Tengdar fréttir

Ávinningur hlut­hafa af sam­runa geti „var­lega“ áætlað numið um 15 milljörðum

Samruni Íslandsbanka og Skaga ætti að geta skilað sér í árlegri heildarsamlegð upp á um tvo milljarða, samkvæmt útreikningum hlutabréfagreinenda, en þar munar langsamlega mestu um verulegt kostnaðarhagræði en á móti verður nokkur „neikvæð samlegð“ í þóknanatekjum. Þá telur annar sérfræðingur á markaði að varlega áætlað muni þetta þýða að ávinningurinn fyrir hluthafa geta numið samtals um 15 milljörðum. 

„Engar teljandi tafir“ orðið í sam­runa­viðræðum Skaga og Ís­lands­banka

Þrátt fyrir vendingar innan stjórnar Íslandsbanka, sem er núna undir forystu fjárfestisins Heiðars Guðjónssonar, þá segir forstjóri Skaga að „engar teljandi tafir“ hafi orðið í samrunaviðræðum félaganna að undanförnu og samrunatilkynning til að skila inn á borð Samkeppniseftirlitsins sé langt komin. Sumir hluthafar Íslandsbanka hafa gagnrýnt það sem þeim finnst vera óhagstæð verðlagning á bankanum í fyrirhuguðum viðskiptum og á nýafstöðnum hluthafafundi svaraði bankastjórinn því til að ný stjórn hefði „tæki og tól“ til að endurmeta samninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×