Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 14:02 Nýverið voru kynntar niðurstöður á þingi Félagsráðgjafafélags Íslands sem hljóta að vekja ugg hjá öllum þeim sem bera ábyrgð á skipulagi, fjármögnun og stjórnun velferðarþjónustu í landinu. Þar kom fram að 94% félagsráðgjafa hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi í starfi. Hótanir og niðrandi framkoma eru því ekki einangruð tilvik eða óheppileg frávik, heldur hluti af daglegu starfsumhverfi fólks sem sinnir lögbundinni þjónustu í þágu almennings. Þegar slík reynsla er nær algild innan heillar stéttar er ljóst að við stöndum frammi fyrir alvarlegum kerfisvanda. Þetta er ekki einstaklingsbundinn brestur þeirra sem í hlut eiga, heldur afleiðing af umhverfi sem skortir skýra umgjörð og vernd. Ábyrgðin hvílir hjá vinnuveitandanum Framlínustörf í velferðarþjónustu eru burðarás samfélagsins. Félagsráðgjafar, heilbrigðisstarfsfólk og aðrar sérfræðistéttir sinna flóknum verkefnum þar sem ákvarðanir hafa afgerandi áhrif á líf fólks. Þótt störfin séu krefjandi má aldrei sætta sig við að ofbeldi sé skilgreint sem „eðlilegur fylgifiskur“ þeirra. Slík viðhorf brjóta gegn grundvallarrétti launafólks til öruggs vinnuumhverfis og ganga þvert gegn meginreglum vinnuverndar. Samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað og öryggi á vinnustöðum ber vinnuveitanda skýra skyldu til að tryggja velferð starfsfólks. Þessi skylda nær jafnt til líkamlegra sem sálfélagslegra áhættuþátta. Þegar ofbeldi stafar frá þriðja aðila, notendum eða aðstandendum, telst það hluti af rekstraráhættu starfseminnar. Það er því óásættanlegt að starfsfólk sé látið bera þá áhættu persónulega vegna manneklu eða vanfjármögnunar kerfisins. Afleiðingarnar eru dýrkeyptar Við vitum að endurtekið áreiti og ógn hafa alvarlegar afleiðingar. Þetta eykur líkur á kulnun, langtímaveikindum og dregur úr starfsgetu. Ef ekki er brugðist við með markvissum hætti gröfum við undan nýliðun í þessum mikilvægu stéttum og þar með undan gæðum þeirrar þjónustu sem almenningur á lögvarinn rétt á. Á alþjóðavettvangi hefur ILO-samþykkt nr. 190 sett skýra staðla um útrýmingu ofbeldis og áreitni í heimi vinnunnar. Fullgilding og innleiðing þeirrar samþykktar hér á landi myndi styrkja lagagrundvöll vinnuverndar og skýra ábyrgð opinberra vinnuveitenda, sem í senn eru löggjafarvald og atvinnurekendur. BHM hefur eins og önnur heildarsamtök launafólks ítrekað kallað eftir því að samþykktin verði fullgild og ákvæði hennar lögfest hér á landi. Afstaða BHM er skýr BHM hvetur félags- og vinnumarkaðsráðherra til að grípa þegar til eftirfarandi aðgerða: Að hefja án tafar undirbúning að fullgildingu og innleiðingu ILO-samnings nr. 190 í íslenskan rétt. Að endurskoða vinnuverndarlöggjöfina með það að markmiði að styrkja vernd starfsfólks gagnvart sálfélagslegri áhættu og ofbeldi, þar á meðal ofbeldi af hálfu þriðja aðila. Að tryggja reglubundið áhættumat í framlínustörfum innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu, ásamt fullnægjandi mönnun og skilvirkum úrræðum og stuðningi fyrir þau sem verða fyrir ofbeldi í starfi. Vernd þeirra sem bera uppi velferðarsamfélagið okkar er ekki einkamál einstakra stéttarfélaga heldur sameiginlegt hagsmunamál. Stjórnvöld verða að koma fram af ábyrgð og tryggja að starfsfólk í framlínustörfum búi sannarlega við öruggar starfsaðstæður. Höfundur er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Skoðun Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar