„Fyrir löngu búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2026 06:41 Þessi mynd var tekin í unglingarými skólans síðasta sumar. Reykjavíkurborg Embættismenn á vegum Reykjavíkurborgar og fulltrúar verktaka sem hefur verið við framkvæmdir í Ölduselsskóla hnakkrifust á kaffistofu kennara á miðvikudag, að viðstöddum kennurum.
Þetta herma heimildir fréttastofu Sýnar. Skóla- og frístundasvið borgarinnar er sagt hafa sagt verktakanum upp án fyrirvara en samkvæmt ályktun starfsmannafundar sem dagsett er í gær segir að öryggisbúnaður sem settur var upp til að forða slysum og koma í veg fyrir að myglugró og önnur heilsuspillandi efni dreifðu sér, hafi verið tekinn niður. Þannig megi ætla að myglugró og heilsuspillandi efni hafi nú dreift sér um skólann, með tilheyrandi hættu fyrir nemendur og starfsfólk. Þá segir að bæði innan og utanhúss séu vinnusvæði iðnaðarmann, með tilheyrandi; óvörðum skurðum, hellum og steypubrotum. Starfsfólk Ölduselsskóla segir ástandið algjörlega óviðunandi.Reykjavíkurborg „Starfsfólk Ölduselsskóla telur að núverandi vinnuumhverfi í skólanum sé hættulegt og heilsuspillandi starfsfólki og nemendum og treystir sér af þeim sökum ekki til að vinna í því umhverfi og taka ábyrgð á nemendum. Starfsfólk óttast bæði um heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna,“ segir í ályktuninni. Tíu sagðir í leyfi eða hættir Vísir greindi frá því í gær að skólahald í Ölduselsskóla hefði verið fellt niður í dag en leiða má líkur að því að sú ákvörðun hafi verið tekin í kjölfar ályktunar starfsfólksins. Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað við skólann en heimildir Vísis herma að um tuttugu rými séu ónothæf vegna myglu. Þá ræddi fréttastofa við heimildarmann í gær sem vildi ekki koma fram undir nafni en sagði um tíu starfsmenn komna í leyfi eða hafa sagt upp störfum og um þrjátíu hafa farið í heilsufarsskoðun vegna einkenna, mögulega af völdum myglu. Í ályktuninni frá því í gær er þess krafist að nemendum og starfsfólki verði útvegað öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Ráðast þurfi tafarlaust í gerð áhættumats og áætlunar um breytingar. „Starfsfólk treystir sér ekki til að vinna í því hættulega og heilsuspillandi vinnuumhverfi sem nú er í og við skólann og krefst tafarlausra viðbragða. Starfsfólk telur að núverandi vinnuumhverfi sé með þeim hætti að vinnuveitandi hafi brotið gegn lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980. Með þessu viljum við að það komi skýrt fram að fyrir löngu sé búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla og tímabært að líðan og staða starfsmanna sé virt og það komi viðbrögð við óskum okkar,“ segir í ályktuninni. Ályktunin er undirrituð af trúnaðarmönnum kennara, almennra starfsmanna og öryggistrúnaðarmönnum. Framkvæmdirnar áttu að taka ár Samkvæmt vef Reykjavíkurborgar hófust framkvæmdir við skólann síðasta sumar en þeim átti að ljúka nú í sumar. Viðgerðirnar áttu að snúast um að „fjarlægja rakaskemmt byggingarefni í nokkrum rýmum Ölduselsskóla. Jafnframt verða grunnlagnir endurnýjaðar. Rýmin sem lagfærð verða eru unglingadeild, félagsmiðstöðin og kaffistofa starfsfólks. Nemendum unglindadeildar hefur verið komið fyrir í Seljakirkju á meðan framkvæmdir fara fram en þær munu bæta innivist þessara rýma. Til að trufla skólastarf sem minnst þá eru hávaðasamir verkþættir unnir eftir skólalok,“ segir á vef Reykjavíkurborgar. Frístundarrýmið haustið 2025.Reykjavíkurborg Þá segir um stöðu framkvæmda í janúar síðastliðnum: „Frá því að framkvæmdir hófust hefur áhersla verið lögð á að koma húsakynnum frístundar í lag svo starfsemi gæti hafist þar að nýju. Þann 2. janúar 2026 lauk framkvæmdum þar og húsið var afhent frístundahlutanum við mikla ánægju starfsmanna og er starfsemi hafin þar. Vinna heldur áfram í kaffiaðstöðu starfsfólks og er reiknað með að henni ljúki á næstu vikum. Hönnun til að auka loftgæði í kaffistofunni stendur yfir auk þess sem framkvæmdir á öðrum hlutum hennar standa yfir. Endurnýjun á stofum 18 og 19, sem eru nærri kaffistofunni og frístundinni, er langt komin. Ráðist verður í frekari framkvæmdir og heildarendurnýjun skólans í framhaldinu.“
Skóla- og menntamál Reykjavík Grunnskólar Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira