Fimm sparnaðarráð fasteignasala: „Líklega besta tímakaup fólks“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. febrúar 2026 16:25 Páll Pálsson fasteignasali gaf fimm ráð sem tengdust fasteignakaupum. Vísir/Vilhelm Fasteignasalinn Páll Pálsson gefur fimm ráð um það hvernig megi spara og hagnast á fasteignaviðskiptum. Þar kemur hann inn á mikilvægi þess að vera ekki dómharður, kynna sér gögn eigna, skoða endurfjármögnun reglulega og vera með meðalfermetraverð hverfa á hreinu.
Páll Pálsson var gestur þeirra Hrefnu Sverrisdóttur og Arnars Þórs Ólafssonar í hlaðvarpinu Viltu finna milljón? og ræddi þar ýmislegt sem viðkemur íslenskum fasteignamarkaði. Hann fór yfir landslagið, stöðugleika á fasteignamarkaði, áhrif nýrra skattareglna á leigumarkaðinn og benti á hvaða hverfi gætu reynst gáfuleg fjárfesting. Þau tvö hverfi sem hann nefndi sérstaklega voru Norðurbærinn í Hafnarfirði og svo svæðið sem nær yfir Álftamýri, Háaleiti og Hvassaleiti. Í hlaðvarpinu er fasti liðurinn „Bestu ráðin“ og þar deildi Páll fimm hagnýtum punktum um hvernig megi spara og jafnvel hagnast á fasteignaviðskiptum. Hér að neðan má lesa þau: 5. Ímyndaðu þér íbúðina tóma, skoðaðu húsið að utan og lestu gögnin „Þegar þú skoðar fasteign er venjan sú að þú labbar inn, skoðar íbúðina, sparkar aðeins í veggina og opnar skápa kannski. Svo labbarðu bara út og hugsar: „Vá hvað mér líst vel á íbúðina.“ Í flestum tilfellum þar sem fólk lýst vel á íbúðina er það vegna hönnunar, hvernig húsgögnin eru og ljósin,“ segir Páll. Fólk geti þannig látið blekkjast af innanhúshönnuninni. Því sé lykilatriði að ímynda sér íbúðina tóma. Vorið er vonandi handan við hornið.Vísir/Vilhelm „Samhliða því að skoða eignina að innan, taktu einn hring í kringum húsið. Röltu þó það sé janúar og brjálað veður, kíktu á gluggana, þakkantinn og múrverkið. Þó þú hafir í raun og veru ekki mikið vit á þessu færðu alltaf ákveðna tilfinningu,“ segir hann. Loks er það að kynna sér gögn eignarinnar því þar leynast oft upplýsingar um yfirvofandi framkvæmdir sem geta reynst dýrar. „Helmingurinn af því að skoða fasteign er að skoða gögnin vel. Ef það er eitthvað að, eitthvað framundan þá á það að koma fram í gögnunum og gögnin sem ég er að tala um er söluyfirlit, húsfélagsyfirlýsing og oft sniðugt að biðja um fundargerðir,“ segir Páll. Á aðalfundum sé oft umræða um það sem þurfi að gera í húsinu. 4. Kláraðu greiðslumat áður (og sýndu seljanda það) Páll segir mikilvægt að undirbúa kaup fasteignar mjög vel, sérstaklega það sem snúi að greiðslumati. „Vertu búinn að fara í greiðslumat og láttu jafnvel fylgja einhverja sönnun fyrir því að þú fáir lánið þegar þú leggur inn tilboðið. Það gerir þig sjálfkrafa að aðeins sterkari tilboðsgjafa,“ segir Páll. „Seljandinn er í óvissu um hvort þú náir greiðslumati eða ekki. Þó þú vitir það er samt gott að láta það fylgja með,“ bætir hann við. Þar dugi einfaldlega pappír frá bankanum um að kaupandinn standist greiðslumat. 3. Endurfjármögnun er besta tímakaupið „Líklega besta tímakaup fólks er að skoða endurfjármögnun á eins til þriggja ára fresti,“ segir Páll. Samanburðurinn geti borgað sig gríðarlega. „Maður byrjaði kannski í unglingavinnunni ungur, opnaði bankareikning einhvers staðar og er búinn að vera giftur sinni fjármálastofnun síðan þá,“ bætir hann við. Möguleikarnir á lánamarkaði séu að sögn Páls fjölmargir, auk bankanna sé hægt að fara til lífeyrissjóða eða sparisjóða. Á vef Aurbjargar er búið að taka saman öll húsnæðislán sem eru í boði og hægt að bera saman lánakjör, uppgreiðslugjöld og vexti megi oft spara milljónir yfir lánstímann. „Það er enginn að segja að þetta sé skemmtilegt en þetta er vel borgað,“ bætir Páll við um vinnuna sem fer í að bera saman lán. 2. Sjáðu tækifærin og ekki vera dómharður Páll hvetur fólk til að hugsa í tækifærum þegar það skoðar eignir og vera ekki dómhart. „Það er einhver skrítin lykt, ljótir litir á veggjum og kannski ljót húsgögn. Ekki útiloka þetta sem tækifærir vegna þess það er ótrúlegt hvað málning, nýtt gólfefni sem kostar ekki mikið og lýsing hefur mikil áhrif á verðgildi eignar,“ segir Páll. Mikilvægt sé að vera með meðalfermetraverð á hreinu.Vísir/Vilhelm Páll tók nærtækt dæmi um íbúð sem hann hafði selt til pars í fyrra. Fyrri eigandi var frumbyggi í húsinu sem var byggt 1970, hafði haldið íbúðinni óbreyttri frá byggingu, átti enga erfingja og lét hana eftir til félagasamtaka. Parið sem keypti íbúðina setti hana á sölu ári síðar og hafði gjörbreytt henni með lítilli fyrirhöfn. „Þau gerðu nánast ekki neitt, þau reyndat skiptu um gólfefni, máluðu í rosalega fallegum litum, pússuðu upp innréttinguna og máluðu og skiptu um höldur. Þessi íbúð hefur hækkað um tíu milljónir á þessum tíma,“ segir Páll. Slík hækkun á markaði sem hefur annars lítið hækkað sé töluverður peningur. 1. Horfðu á fermetraverðið Stærsta og mikilvægasta ráðið, að mati Páls, er að þekkja fermetraverðið og nota það sem mælikvarða við samanburð. Hann ráðleggur fólki að mæta vel undirbúið og kynna sér meðalfermetraverð í því hverfi sem það hefur áhuga á. Hægt sé að nýta vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að finna meðalfermetraverð. „Segjum svo að meðalfermetraverðið sé 760 þúsund og sérð allar eignir sem eru auglýstar til sölu á 850 til 900.000 þúsund, þá áttu að hugsa þig tvisvar um,“ segir Páll. Þekkingin á meðalfermetraverðinu sé að hans sögn mjög dýrmæt upp á það að kaupa rétt.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Lánamál Fjármál heimilisins Reykjavík Hafnarfjörður Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sjá meira