Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Kjartan Kjartansson skrifar 26. febrúar 2026 11:16 Rafmagnslínur í Sundsvall í Svíþjóð. Myndin er úr safni. Vísir/EPA Yfirvöld á Norðurlöndunum eru sögð kanna alvarlega hótun sem beinist að orkukerfi allra landanna. Ekki liggur fyrir í hverju hótunin felst en hún er talin stafa frá erlendu ríki.
Sænski fjölmiðillinn TV4 segir að hótunin hafi borist öllum Norðurlöndunum, þar á meðal Svíþjóð. Verið sé að rannsaka tengsl hótunarinnar við erlent ríki. Lögreglan segir fjölmiðlinum að lykilinnviðir séu vaktaðir vegna hótunarinnar. Frá því að fyrstu fréttir voru sagðar af ógninni hafa sænsk yfirvöld gert grein fyrir því að ekki sé um aðsteðjandi ógn að ræða heldur almennan viðbúnað eftir að ráðist var á orkuinnviði Póllands í desember. „Við höfum enga ákveðna ógn, hvorki áframhaldandi né aðsteðjandi, við orkuinnviði Svíþjóðar. Það er hins vegar almenning aukning í öryggisviðbúnaði sem leyniþjónustan hefur þegar gripið til,“ segir talsmaður sænsku lögreglunnar við ríkisútvarpið SVT. Ebba Busch, orkumálaráðherra Svíþjóðar, segir orkuinnviði hafa lengi verið skotmark ógnana og árása. Varnarmálaráðuneytið hafi vissulega nýlega hvatt til aukinnar varkárni. „Yfirvöld bregðast hárrétt við, axla ábyrgð, grípa til forvirkra aðgerða, vinna náið saman og sýna styrkleika Svíþjóðar,“ skrifaði Busch á samfélagsmiðil í dag. Varnarmálaráðuneytið er sagt hafa hafi hvatt orkufyrirtæki til sérstakrar varkárni í lok síðustu viku í gegnum netþjóðaröryggismiðstöð Svíþjóðar. „Við teljum ástæðu til að vera á varðbergi, jafnvel hér í Svíþjóð,“ segir talsmaðurinn. Talskona sænsku almannavarnastofnunarinnar segir þarlenda ríkisútvarpinu að hún viti af hótuninni og vinni með öðrum stofnunum vegna hennar. Sænska orkustofnunin segist hafa upplýsingar um hótunina en að hún geti ekki tjáð sig um mögulega ógn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Svíþjóð Noregur Danmörk Finnland Orkumál Öryggis- og varnarmál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira