Grásleppufrumvarpið er mikil afturför Jens Guðbjörnsson skrifar 26. febrúar 2026 10:02 Það aumkunarvert að fylgjast með því þegar þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar nota nokkra grásleppukarla sem skiptimynt í stjórnarsamstarfinu. Þetta virðist gert m.a. til að fá þingmenn FF til liðs við bókun 35 og kosningar um evrópuviðræðurnar. Aftur á móti virðast þingmenn FF halda að þeir geti með þessu molað úr kvótakerfinu sjálfu, auk þess sem þetta er tilraun til að friða vargana í LS vegna skerðinga í strandveiðikerfinu. En auðvitað er lítil hætta á því að þetta hafi þau áhrif sem ætlast er til. Að mínum dómi er meiri hætta á að krókakerfi smábáta gefi eftir með tímanum vegna pólitískrar ósamstöðu. Þessi lagabreyting mun eingöngu skemmta skrattanum og skapa ólgu og misklíð milli trillukarla um langan tíma. Eitt það furðulegasta við frumvarp Lilju Rafneyjar er að endurvekja leyfi allt aftur til 1997. Þetta er fráleitt m.a. vegna þess að megnið af þeim hafa ekki verið notuð í 10-20 ár. Vegna heimildar í frumvarpinu til að sameina leyfin verða þau því fyrir marga eingöngu söluvara. Við sem höfum stundað þessa atvinnugrein verðum auðvitað kaupendurnir þ.e.a.s. þeir sem hafa áhuga að halda áfram þessu basli. Svo er annar flötur á þessu, útgerðir sem í gegn um tíðina hafa keypt marga báta vegna heimilda í þorski hafa eignast mörg leyfi til grásleppuveiða. Þarna eru væntanlega margar stærstu útgerðir landsins. Því munu sumir eignast mörg leyfi og verða betur settir en aðrir, þrátt fyrir hafa lítið sem ekkert veitt undanfarin ár. Aftur á móti við sem aflað höfum vel í gegn um tíðina haft einn bát og eitt leyfi. Þurfum eins og áður sagði að kaupa eða leigja daga hjá öðrum. Varla getur það nú talist sanngjarnt gagnvart elstu grásleppuútgerð í landinu. Mest undrandi er ég þó á því að svo mikið liggur á að ná af okkur þessum heimildum, að þetta frumvarpsskrifli gerir ráð fyrir að lögin taki gildi á yfirstandandi vertíð. Þar sem sumir eins og við eru búnir að veiða hluta af kvótanum og aðrir jafnvel klára hann. Ég er nokkuð viss um að þetta er ekki löglegt og mun skapa bótaskyldu. Þá er í annan stað augljóst að þessi ráðstöfun er að öllu leyti siðlaus. Að þessu sögðu er enn fremur ljóst að þessi breyting mun skapa óhemju mikið flækjustig fyrir yfirvöld, sem mun taka tíma að greiða úr. Þetta truflar því og tefur alla sem stunda veiðarnar. Svo virðist vera sem þessi gjörningur sé eingöngu gerður til að eyðileggja sem mest fyrir okkur grásleppukörlum. Það er hryggilegt til þess að hugsa að sumir ykkar séu tilbúnir að eyðileggja kerfi sem gæti hugsanlega gert grásleppuveiðar að alvöru atvinnugrein og skapað töluverð verðmæti. Kannski hyggist þið ríkisstyrkja þessar veiðar eins og Grænlendingar. Sumum þingmönnum mundi efalaust hugnast það vel. Ég ætla ekki að tíunda aftur alla þá ókosti sem eru samfara því að fara aftur í „ólympísktu veiðikerfi“. Heldur aðeins benda á verstu agnúana. Ólympískt virkar þannig. Að í upphafi er gefin út heildarafli (Hafró) Síðan hefur hvert leyfi jafn marga daga til veiða. Nú er það þannig að missamt er hve snemma grásleppan gengur til hrygningar. Vertíðin hefst því oft seinna t.d. hér og Breiðafjörðinn m.a er þetta á þeim slóðum vegna æðarvarps. Þetta getur leitt til að ef vel veiðist fyrir Norðan, klárast potturinn áður en við og Breiðfirðingar hefja veiðar þetta skeði t.d. 2019. Væri ekki nær að halda sig við núverandi kerfi sem er bæði skilvirt, fyrirsjáanlegt og þörf fyrir eftirlit lítil. Jafnframt leiðir þetta til að vertíðin fer skarpar á stað og oft róið í vondum veðrum og þegar meðafli er meiri. Svona kerfi var reynt í krókakerfinu og kostaði þá manslíf. Það er staðreynd að í svona kerfi nota menn fleiri net og taka meiri sénsa við veiðarnar. Þá mun bátum sennilega fjölga sérstaklega þegar verð eru góð. Aftur á móti fjölgar grásleppunni auðvitað ekkert. Þá fer í burtu sá möguleiki að veiða hana á mismunandi tíma og gera sér meiri verðmæti úr henni. Það hefur verið talað um að heimilla sjómönnum að taka upp netin vegna veðurs og annars óáran. Eftirlit með því er bæði mjög erfitt og kostnaðarsamt. Spurningin er hver á að borga þetta óhemju dýra eftirlit ? Að lokum vill ég segja þetta frumvarpið er lítið mál fyrir þingmenn en aftur á móti óhemju stórt mál fyrir 140 grásleppuútgerðir í landinu þ.e.a.s. 80-90 % þeirra sem hafa verið veiða grásleppu. Margir munu þá líta þannig á að þeir þingmenn sem veita þessu frumvarpi brautargengi sé slétt sama um aukna slysahættu sjómanna og óþarfa meðafla t.d. á sjávarspendýrum og fuglum. Ég hugsa þá sérstaklega til þeirra sem grátið hafa örlög stórhvala og hrossa undanfarin ár. Jens Guðbjörnsson grásleppukarl til 45 ára. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar