Tók til varna fyrir Sterling: „Hvað er eiginlega að ykkur?“ Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2026 12:02 Raheem Sterling var glaður yfir að geta loksins spilað fótbolta að nýju. Getty/Pim Waslander Jack Grealish blöskraði hvernig talað var um Raheem Sterling eftir að hann steig loksins út á fótboltavöllinn að nýju, með sínu nýja liði Feyenoord um helgina.
Sterling hafði ekki spilað fótboltaleik síðan í maí í fyrra, eftir að hafa verið kominn í frystiklefann hjá Chelsea, en er nú mættur til Feyenoord og spilaði síðasta hálftímann í 2-1 sigri gegn Telstar. Þessi 31 árs gamli leikmaður sem einnig hefur spilað með Arsenal, Manchester City og Liverpool, auk yfir 80 landsleikja fyrir England, sló ekki í gegn með frammistöðu sinni enda eflaust nokkuð ryðgaður. Frammistaða Sterling var gagnrýnd, ekki síst á samfélagsmiðlum og þar á meðal á Instagram-síðunni Football Park. Þar var Sterling sagður hafa verið eins og Bambi á svelli, frumraun hans eins og stórslys og því velt upp hvort hann ætti ekki bara að leggja skóna á hilluna. Jack Grealish lét þá sem sjá um síðuna Foootball Park heyra það.Skjáskot/@footballpark Þessu gat Grealish ekki tekið þegjandi og hljóðalaust: „En hvað þetta er viðbjóðslega heimskuleg Instagram-færsla maður, hvað er að ykkur? Gaurinn hefur ekki spilað eða æft í langan tíma. Fólk eins og þið er það sem er að heiminum. Sýnið smá virðingu,“ skrifaði Grealish til varnar sínum gamla liðsfélaga og hlaut góðar undirtektir. Sterling gælir eflaust við þann draum að komast í HM-hóp Englands fyrir sumarið en hefur ekki rætt við Thomas Tuchel landsliðsþjálfara. Eftir leikinn við Feyenoord sagðist hann einfaldlega vilja smám saman þoka sér í átt að fyrra formi: „Ég er ekki búinn að spila í dágóðan tíma en ég hef reynt að halda mér í góðu ástandi. Ég er að byggja mig upp skref fyrir skref og reyna að ná upp leikforminu,“ sagði Sterling.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira