Misvísandi fréttir frá Mexíkó Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 09:15 Frá æfingu íslenska landsliðsins í Mexíkó. Mynd/KSÍ Enn er óvíst hvort landsleikur karlalandsliðs Íslands við Mexíkó þar ytra fari fram á aðfaranótt fimmtudags líkt og til stendur. Einhverjir miðlar segja líklegra en ekki að leiknum verði frestað af öryggisástæðum en aðrir segja leikinn fara fram.
Óeirðir voru víða í Mexíkó eftir að þarlendar hersveitir skutu glæpaforingjann Rúben Nemesio Oseguera, þekktur sem El Mencho, til dauða, í fyrradag. Oseguera fór fyrir einum stærstu glæpasamtökum heims og viðbrögðin urðu hörð víða um land þar sem bílar voru brenndir og vegum lokað. Þar á meðal var leik Queretaro við Juarez í mexíkósku deildinni, sem átti að fara fram aðfaranótt mánudags, frestað. Sú frestun var ekki vegna óöryggis leikmanna eða starfsteyma liðanna heldur fremur öryggisráðstöfun áhorfenda vegna. Yfirvöld vildu síður standa að svo stórum viðburði við þessar aðstæður. Sú ástæða gæti einnig orðið til þess að landsleik Íslands verði frestað á miðvikudaginn kemur. Svo segir í frétt Dailysport en mbl greindi fyrst frá og vísaði í þann miðil. Erfitt sé fyrir yfirvöld að tryggja öryggi allra viðstaddra. Mirror í Írlandi sagði svipaða sögu; að leiknum verði frestað. Mexíkóskir miðlar segja aðra sögu ESPN í Mexíkó greindi hins vegar frá öðru í gær. Samkvæmt miðlinum hafi verið ákveðið að halda upprunalegu plani eftir fund öryggisráðs Queretaro-borgar. Að leikurinn fari sannarlega fram. „Eins og stendur verður leikurinn spilaður fyrir áhorfendum,“ hefur ESPN eftir heimildamanni frá mexíkóska knattspyrnusambandinu. Áhorfendur verði leyfðir en öryggisgæsla á leiknum verði gríðarleg til að tryggja öryggi áhorfenda. Bæði lögreglumenn og hermenn komi að þeirri öryggisgæslu sem verði innan vallarins og utan, og í nærliggjandi hverfum. Frekari upplýsingar muni liggja fyrir eftir fund yfirvalda í Queretaro með mexíkóska knattspyrnusambandinu sem skipulagður er síðar í dag. KSÍ fær uppfærslu á nokkurra klukkustunda fresti Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Vísi í gær að öryggi starfsfólks og leikmanna væri í forgrunni og engir sénsar yrðu teknir. Í viðtali við Vísi í gær sagði þá Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, jafnframt að starfsteymi KSÍ berist uppfærslur á öryggisstöðunni á nokkurra klukkustunda fresti. „Staðan er tekin á tveggja til þriggja klukkutíma fresti. Við erum vel upplýstir. Ég held að það sé málið að vera bara í núinu. Eins og staðan er núna þá fer leikurinn fram sem þýðir að það eru tveir fundir í dag og góð æfing. Ef það breytist á næstu tveimur tímum þá verðum við að vera yfirvegaðir og taka góða ákvörðun í samráði við yfirvöld,“ sagði Arnar.
Landslið karla í fótbolta KSÍ Mexíkó Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands? Myndi taka kúlu fyrir Infantino Sjá meira